Sorgarsögurnar á misjöfnum stöðum

Nils með boltahrygnu úr Aðaldalnum fyrir skemmstu...

Víðast hvar eru laxveiðitölur all miklu hærri en á sama tíma í fyrra. Það hefur hins vegar gengið upp og ofan hjá helstu sorgarsögum síðustu ára, Laxá í Aðaldal, Blöndu og Soginu.

En í sumar er veiðin betri svona heilt yfir, sums staðar miklu betri, annars staðar bara betri.Sem dæmi um flottan bata má nefna Þverá/Kjarrá og Norðurá sem eru komnar furðu nálægt heildartölu síðasta sumars. Að vísu ekki úr háum söðli að detta þar sem síðasta sumar, og raunar þrjú síðustu sumur, voru léleg með afbrigðum. En angling.is segir söguna um batann. En hvað með „sorgarsögurnar“? Laxá í Aðaldal þótti til dæmis vera að gera endurkomu í fyrra og lokatalan var þó aðeins 685 laxar. Það sýnir hvað árin á undan voru yfirgengilega slök og menn farnir að óttast að drottningin ætti ekki afturkvæmt.En í fyrra kom svo fjörkippur þótt lítill væri. Og hvað nú? Einn duglegasti veiðimaður landsins, Nils Jörgensen er sumar hvert í Aðaldalnum og hann er ný farinn þaðan. Heyrum hvað hann hafði að segja um dvölina:
„Var að landa 20 löxum í þriggja daga veiði í Laxá í Aðaldal! Þessi ferð fór með ljósárum langt fram úr væntingum mínum, sem gerði það að þriðju bestu ferð minni nokkurn tíma í þessa ótrúlegu á, þekkt sem drottningin. Áin er komin í frábært form aftur! Framúrskarandi ferð með fullkomnu veðri, frábærum félagsskap, og ákafri yfirborðsveiði með Ernu flugunni minni, stærð 8, tvöfaldur krókur. Besta flugan á ánni í dag.
Sogið ratar ekki inn á lista angling.is, enda flókið spil að taka saman tölur þar, áin brotin upp í fjölda svæða. En það fer ekki hjá því að fréttir berist þaðan af og til og þó að það heyrist af skotum, sem sum eru góð, þá er heildarsýnin ekki sérlega björt. Nýlega birti Árni Baldursson landeigandi og umsjónarmaður Ásgarðssvæðisins, tölu á FB þar sem hann minnti á að á meðan Sogið væri ósjálfbært og undir ströngum tilmælum til veiðimanna að sleppa þar öllum laxi, væri enn skefjalaus netaveiði hér og þar í Ölfusá sem hyggi ekki aðeins skörð í laxastofn Sogsins, heldur allra áa í uppsveitunum þar eystra.
Og Blanda? Eins og Laxá í Aðaldal, ein löng sorgarsaga með síminnkandi veiði síðustu sumur, en ólíkt Laxá þá bólar ekki á bata í Blöndu. Þvert á móti. Síðasta fimmtudag birti angling.is töluna 127 fyrir Blöndu, en allt síðasta sumar veiddust þar aðeins 359 laxar. Að vísu heyrðist af líflegri smálaxagöngu þar fyrir skemmstu, þannig að spurt verður að leikslokum.