Það hefur vakið athygli áhugamanna um lax- og sjóbirtingsgöngur, ekki hvað síst velunnarra Elliðaána að fylgjast með stórfjölgun stórra sjóbirtinga síðustu árin og nú fyrir skemmst skráði teljarinn eina hrygnu upp á heila 92 cm og af myndinni að dæma ofboðslegt ummál að auki.
Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskum hefur vaktað Elliðaárnar um árabil og hann skemmdi aðeins partýið með því að sýna fram á að fiskurinn hafi í raun ekki verið alveg svona stór. En stór þó, mjög stór, á bilinu 80-90 cm. Hleypum Jóhannesi að og leggjum svo út frá því:
„Það eru sannarlega nokkrir vænir sjóbirtingar í Elliðaánum þetta árið og þessi sem skráður var 92 cm í teljaranum keppir í þungavigtarflokki. Reyndar rétt að nefna að stærð þeirra þykkustu er aðeins ofmetin því lengdin er reiknuð út frá hæð fisksins sem skuggamyndaskynjari teljarans skráir. Meðaltalið hjá Elliðaárlaxinum varðandi það samband sem er á milli hæðar fisksins á bolinn (ígildi mesta ummáls) og eiginlegrar lengdar fiskanna ræður margföldunarstuðlinum sem notaður er af teljaranum við sjálfvirkan útreikning fisklengdarinnar. Síðan koma sjóbirtingar og laxar með væna „herðakamba“ sem þá auka aðeins lengd fiskanna miðað við það sem reyndin er og þeir sem eru áberandi ofmetnir í lengd eru leiðréttir handvirkt þegar gögnin eru unninn við skýrsluskrif. Sá sjóbirtings hlunkur sem hér um ræðir er einmitt vegna sverleikans aðeins ofmetinn í þessari sjálfvirkt reiknuðu lengd teljarans en þó ljóst að hann er á milli 80 og 90 cm á lengd. Fjöldi urriðanna/sjóbirtinganna sem ganga um fiskteljarann hefur aukist hressilega á meðan ég hef vaktað Elliðaárnar, því sumarið 2011 fór 151 birtingur upp teljarann en sumarið 2023 voru þeir orðnir 991 að tölu, þar af ríflega 60 sem voru 50cm og yfir eftir leiðréttingu gagna.“
Hrygnan var sem sagt ekki alveg 92 cm. En stór var hún og oft skjóta upp kollinum vangaveltur um þyngd stórra sjóbirtinga, enda eru þeir afar oft talsvert þyngri en laar af sömu lengt. Það gerir mjóslegnara vaxtarlag laxins. Þá er afar athyglisvert að sjá á tölum Jóhannesar hver aukning hefur verið í sjóbirtingsgöngum síðustu árin. Og vaxandi stærð þeirra. Þetta virðist hafa samhljóm við aukningu í sjóbirtingi í ám t.d. a vestanverðu Norðurlandi. Á sama tíma og lai fór að fækka í ám á borð við Vatnsdalsá og Víðidals, og bleikju fækkaði einnig, þá sótti sjóbirtingur í sig veðrið hefur nú um nokkurt árabil verið mjög gildandi í veiðitölum umræddra áa og fleiri.










