Vopnafjörðurinn ekki að svíkja

Jim og Julia Ratcliffe, Stefán Kristjánsson og Sveinn Björnsson (Denni) með lax í Stapa í Hafralónsá. Mynd GÁ

Það var búist (eða vonast eftir) flottri byrjun í Vopnafjarðaránum og opnunin þar gefur vissulega góð fyrirheit, en eins og venjulega, þá leiðir tíminn í ljós hvernig allt fer.Selá opnaði fyrr en áður, eða síðasta föstudag.

Albert Þór Jónsson með einn vel ríflega 90 cm úr Hofsá. Myndina fengum við frá Ara Þórðarsyni.
Eigandinn Jim Ratcliffe hefur verið einn með opnunina og var búinn að landa 12 löxum í gærkvöldi síðan á föstudag, þegar áin var formlega opnuð. Gísli Ásgeirsson, framkvæmdastjóri félags Ratcliffs, Six Rivers Iceland, sagði stöðuna núna mjög sérstaka, lax hefði sést í þó nokkrum mæli fyrir 10-12 dögum og í opnun hefðu veiðst laxar í Stekk, lax hefði tapast í Skipahyl og Rauðhyl og lax stokkið í Bjarnarhyl. Allir eru þeir staðir ofan við fossinn og hefur ekki fyrr veiðst lax í Selá ofan við foss í opnun. 40 laxar hefðu gengið upp stigann, í gegn um teljarann. „Þetta hefur aldrei gerst áður“, sagði Gísli.
Ratcliffe og Six Rivers eru einnig eigendur að vænum hluta í Hafralónsá og þar var opnað, óformlega, síðasta laugardag. Tveir komu strax á land og áin verður skoðuð nánar í byrjun viku.
Kastað í Hofsána í gær, myndina fengum við frá Ara Þórðarsyni.
Hvað Hofsá varðar, Ari Þórðarson sem opnaði  ána ásamt fleirum, sagði í gærkvöldi: „Komnir með 8 á land og búnir að missa jafn marga. Fiskur á öllum svæðum, frá Stekkjarfljóti upp í Efra Foss. Áin er í fínu sumarvatni og í fínu standi eftir veturinn.“