Laxveiðitölur hafa víðast hvar verið slakar síðustu vikurnar og ekki laust við að margir spyrji sig: Er svona lítið af laxi eða eru skilyrðin svona slæm? Nema að hvoru tveggja sé. VoV ræddi við nokkra aðila sem haft hafa þumalinn á ástandinu vítt og breytt um landið.
Það hefur slegið dálítið saman hvort að mikið sé eða lítið af laxi í ánum, hvort að eitthvað hafi t.d. orðið úr smálaxagöngunni á seinna stórstreyminu í júlí á Norðurlandi og hvað síðan hafi tekið við. Það er helst Suðvestur- og Vesturlandið upp í Borgarfjörð sem skilað hefur boðlegum tölum, en síðustu vikur hefur veiði þar dalað. Annars staðar á Vestur- og Norðurlandi hefur veiðin verið róleg svo ekki sé meira sagt. Fór þó næstum alls staðar vel af stað. Norðausturlandið hefur verið á svipuðu róli og síðustu sumur. En hvað segja menn:
Sem fyrr segir hafa kunnugir talað um að helstu árnar í Borgarfirði hafi fengið góðar smálaxagöngur. Heldur minna af stórlaxi en í fyrra. Haraldur Eiríksson sölustjóri hjá Hreggnasa hefur haft augun á nokkrum af helstu ám síns félags og á þessum slóðum er fyrirtækið t.d. með Grímsá, Laxá í Kjós ögn sunnar og ögn norðar, Laxá í Dölum. Haraldur segir: „Það er ekkert að laxamagninu í Grímsá. Hún er komin yfir 900 laxa og á mjög mikið inni. Sama er með Dalina, sem eru þó ekki með jafn mikið af laxi og í fyrra, en þurrkurinn í sumar hefur farið illa með hana. Kjósin er með mun meira af laxi en í fyrra en þar hefur ekkert rignt að ráði frá því í júlí. Þessar ár verða að litast í rigningatíð til að eitthvað verði úr þessu.“
Ingólfur Ásgeirsson, einn leigutaka Þverár/Kjarrár og Einar Sigfússon, sölustjóri Veiðifélags Norðurár hafa tekið í svipaðan streng og það sama má segja um Karl Lúðvíksson, umsjónarmann vestur í Langá. Enda eru veiðitölur í þessum ám með þeim hætti að lokaútkoman gæti orðið miðlungi góð og raunar er Grímsá nú þegar komin yfir heildartölu sína frá síðasta sumri. Sama má segja um Elliðaárnar. Þannig má segja að göngur hafa verið nokkuð góðar allar götur upp í Borgarfjörð, talsvert sé af laxi og að árnar eigi mikið inni ef að skilyrði batna.
Vestan og norðan Borgarfjarðar kveður við nokkuð annan tón. Á Snæfellsnesi brokkar Haffjarðará sæmilega áfram, en aðrar ár eru ekki á pari, Ástþór Jóhannsson, leigutaki Straumfjarðarár ásamt eiginkonunni Katrínu Ævarsdóttur, sagði t.d. í skeyti til VoV: „Jú það er alltaf frábært í sveitinni, en það er minna skemmtilegt við ána í endalausri sumarblíðunni og talsvert minni laxagengd en vonir og væntingar stóðu til fyrr í sumar. já það er vonandi að höfuðdagsstraumurinn skili okkur einhverju, og að það rigni bráðum.“
Jóhann Davíð Ólafsson, sölustjóri hjá Lax-á er víða með fingur á púlsinum. Hann sagði í samtali við VoV: „Heilt yfir er minna af laxi hreinlega og stefnir í lélegt sumar víða, verra en 2014.Vel hægt að sjá tóninn á veiðtölum á angling.is. Svo er spurning af hverju? Fiskifræðingar spáðu mjög góðu smálaxaári en það er að bregðast víða algerlega
Ekki að marka Sogið þar sem búið er næstum að drepa það fyrir þetta. Stóra Laxá gæti endað í fínni meðalveiði ef fer að rigna bráðum. Tungulfjót er búið að skila um 90 fiskum en besti mánuðurinn þar hefur verið september. Þannig að við sjáum hvað setur.

Leirvogsá og Korpa eru lélegar en Elliðaárnar góðar. Vestfirðir og Blanda/ Svartá eru léleg. Auðvitað spilar vatnsleysi víða inn í. Þær renna varla sumar, t.d. Leirvogsá, held samt að göngur hafi oft verið sterkari. Það er þó töluvert af fiski í Leirvogsá og nánast ekkert verið drepið. Gæti orðið veisla þar í haust ef rignir.“
Við höfum oft leitað til Péturs Péturssonar með yfirlit yfir stöðu mála á Norðurlandi. Hann er leigutaki Vatnsdalsár sem kunnugt er og við höfum iðulega farið í rafrænu veiðibók Vatnsdalsár til að sjá ástandið á Norðurlandi því að oft er samhljómur á milli áa, mismikill þó. Pétur sagði að sér finndist að það hefði verið meira af laxi í fyrra en nú. „Það er samt töluvert af smálaxi, en hann er að reytast inn. Engar göngur í þess orðs fyllstu merkingu. Og smálaxinn er vel haldinn en smár. Talsvert innan við 60 sentimetrana. Maður vonar auðvitað það besta en ég á ekki von á að mikil breyting verði héðan af. En þetta er ekki alger dauði, langt frá því. Það er lax í ánni, skilyrðin hafa verið afleit vikum saman. Stundum bara 3-6 laxar á dag, en svo gerist eitthvað eins og fyrr í vikunni og það koma tólf á einum degi, m.a. einn 98 cm, og eftir að hafa ekki fengið fisk á efri svæðunum í sex daga þá er allt í einu bullandi líf þar. Leginn lax að vísu, en allt í einu að sýna sig. T.d. þrír risar á mismunandi stöðum í Torfhvammshyl.
En hvað með Drottinguna Laxá í Aðaldal, hún er með lakari tölu en í fyrra, Jón Helgi Björnsson sagði: „Bara sama og annarsstaðar, lélegar smálaxagöngur í fyrra og því fáir stórlaxar, en samt sæmilega göngur miðað við smálaxinn í fyrra. Smálaxinn liðfár nùna einnig. En það var gott vor í vor og mikil niðurganga af seiðum og því bullandi smálax á næsta ári, alltaf bjartsýnn!“
Og hvað með Norðausturhornið? Jökla hefur verið lakari í sumar en í fyrra, en Snævarr Örn Georgsson hefur verið leiðsögumaður við ána í sumar og hann sagði: „Jökla er ekkert hræðileg, það eru bara sömu rólegheitin þar og annarsstaðar. Bara 2015 og 2016 hafa verið betri á þessum tímapunkti og við erum á pari við 2011, betri en öll hin árin. Yfirfallið auðvitað dregur helling úr, þetta verður svipuð veiði til svona 2020, þá verður sprengja. Það var svakaleg hrygning 2015 og mikil aukning á sleppingu sumaralinna smáseiða í Jöklu sjálfa í ár, það ætti allt að skila sér 2020 og 2021. Það er reytingur í Jöklu.“
Breiðdalsá hefur verið afar dauf og Þröstur Elliðason sagði í samtali við VoV að það stafaði af ýmsu, vatnsleysi og slökum göngum. Hins vegar væri áin alls ekki fisklaus eins og ýmsir teldu og það myndi koma fram þegar skilyrði bötnuðu, en þau hefðu verið ferleg. Áin oft illa seld í ágúst að auki og þegar fáir eða engir væru að veiða þá væri ekki von á flottum veiðitölum.
Og fleira um Norðausturhornið. Vopnafjarðarárnar hafa verið í sviðsljósinu síðustu sumur vegna þess að þar hefur verið viss niðursveifla. Hún hefur verið mest afgerandi í Hofsá, en líka að einhverju leiti í Selá. Sveinn Björnsson, Denni, sagði við okkur fyrir skemmstu að það væri „skárra í báðum ánum „ í sumar. Nils Folmer Jorgensen víðförull stangaveiðimaður sem venur komur sínar í Hofsá sagði í samtali að sér finndist áin vera að koma til baka. „Hún þarf tíma, en það sem sló mann í sumar er mikið af seiðum á ýmsum aldursstigum. Þá hefur áin gefið aðeins meiri afla en í fyrra þó að það sé kannski ekki marktækur munur. En það er meira af laxi í ánni og hann hefur dreift sér um allt. Er ekki bara í örfáum hyljum eins og í fyrra,“ sagði Nils. Þetta með seiðamagnið heyrðum við líka með Selá í fyrra. Allt í einu, eftir all nokkur ár, var hún full af seiðum.
En hvað sem öllu líður, þá vonum við að við höfum gefið lesendum einhvers konar mynd af ástandinu eins og það er. Í kvöld koma síðan nýjar vikutölur á angling.is og það má búast við meiru af því sama frá síðustu vikum. Gott í Rangárþingi, en dalandi annars staðar. En sjáum til. Síðan er spurt að leikslokum.










