
Eldislaxafárið hefur leitt eitt og annað af sér, m.a. annars reglur sem heimila landeigendum og leigutökum að lengja veiðitímann fram í næsta mánuð til að ná óboðnum gestum. Það hafa leigutakar Stóru Laár gert, en ákvörðun þeirra er umdeild. Lítið sést af eldislaxi á Suðurlandi og hrygning villta stofnsins í algleymi. En:
Sem sagt. Í fréttum frá leigutökum Stóru Laxár hefur margsinnis komið fram hvað mikið af laxinum sem veiðist nú í haust sé nýlega genginn, eða „nýlegur“, sem sagt bjartir laxar. Þess vegna sé þetta í lagi í Stóru Laxá…og því hefur fylgtd að laxinn á sunnanverðu landinu hrygni seinna en sá sem gengur í ár norðan heiða.
Hvað vitum við á VoV um hrygningartíma laxa eftir landshlutum? Kannski ekki allt of mikið en eitt vitum við með vissu og byggist á áratuga langri reynslu af veiðum í öllum landshlutum. Við erum þrír og höfum veitt um allt land í áratugi. Varla til sú á að við höfum ekki heimsótt og prófað, og margar margoft. Þessi „bjarti“ og nýlega gengni“ lax í lok september og í október. Hann er alls ekki nýr eða nýlega genginn. Hann á sér nafn: Jökulleginn.
Við hér á VoV erum frekar hissa að talað sé um nýja, eða nýlega gengna laxa á þessum árstíma. Á þessum slóðum. Það eru fjöldamörg ár síðan að við fengum vitneskju, með samtölum við reynslubolta og af eigin reynslu að þessir „björtu“ laxar eru búnir að vera lengi í fersku vatni. Bestu dæmin sem að við þekkjum af eigin reynslu eru Iðan og Tungufljót í Vestur Skaftafellssýslu. Okkar prívat reynsla er þaðan, en við höfum haft spurnir af því sama frá öðrum frá miklu fleiri stöðum.
Þar sem laxinn liggur lengi sumars undir feldi jökulvatns, á ármótum við ferskvatn. Alltaf talað um að laxinn taki lit af aðstæðum Verða t.d. skringilega grænir með brúnkunni í drullunni í Svartastokki í Kjarrá. Iðan er ármót Hvítár og Stóru Laxár, Tungufljót við Syðri Hólma er ármót Tungufljóts við Ása Eldvatn. Já, þetta virkar á báðar sortirnar, lax og birting.
Með því að liggja vikum saman undir jökulteppi kemur annar litur á laxinn. Ef hann gengur beint í bergvatn þá verður hann smátt og smátt þessi svarti, brúni, rauði, rauðbrúni….en ef hann eyðir mörgum vikum undir jökulkápu, þá verður hann: Jökulleginn. Allt annar litur. Bjartur. En þroskaður og alveg jafn tilbúinn í hrygningu.
Við höfum fylgst með þessari umræðu og ekki skotið neinu inn fyrir núna. Við héldum satt að segja að vanir veiðimenn þekktu þetta og vissu.









