Frásögn VoV um jökullegna laxa hér og þar um landið, í framhaldi af áköfum fréttum frá Stóru Laxá um „nýja“ og „nýlega“ gengna laxa, vakti athygli og við höfum sjaldan fengið jafn margar lesningar á frétt. Förum aðeins lengra með umræðuna.
Þeir sem eru reynsluboltar í laxveiði vita að þessir laxar í Stóru Laxá á síðhaustinu eru ekki nýkomnir úr sjó. Það er gömul saga og ný að lax liggur lengi á Iðu og fer svo upp á haustin þegar rignir. Og þá hefur hann fengið þennan bjarta lit sem jökulkápan gefur honum. Septemberveiðin hefur löngum hresst veiðitölur Stóru Laxár, en þegar menn fá leyfi til að veiða nánast allan október þá er ekki von á öðru en að vel veiðist. Laxinn loksins genginn upp úr Iðu. Og margir bjartir eftir jökulvatnsdvölina.
En við töluðum um að fara aðeins lengra með umræðuna. Leginn er eitt, grútleginn er eitt, jafnvel draugleginn hefur heyrst. Og svo jökulleginn, sem er dæmið í Stóru Laxá. En svo er líka til Þaraleginn.
Og hvað er það? Það er þegar vatnslitlar ár verða erfiðar laxinum í löngum þurrkasumrum. Laxinn bíður þá í ósnum eftir því að það rigni og hækki í ánni. Hann er mættur á réttum tíma, en áin er erfið og hann bíður. Bíður í þaranum. Hann skiptir um lit þar. Svo rignir um haust og laxinn flýtir sér upp í á. Við hér á VoV erum reynsluboltar með marga áratugi í reynslu og höfum séð þetta oft og heyrt af því enn oftar. Prívat hefur ritstjóri veitt laxa í Úlfarsá og Álftá í september, eftir fyrstu rigningu, dökkbrúna laxa og grálúsuga. Meira að segja óvenjulega mikið lúsuga, eins og aukin sjávardvölin hafi gefið eggjalengjunum færi á að klekjast út á baki laxana. Alla vega voru á þessum löxum mikið magn af mjög smárri lús.
Þannig að hvað sem menn vilja halda, eða halda fram, þá segir reynslan meira en margt. Svo því sé haldið til haga, þá hefur ritstjóri fengið 13 punda silfurbjartan grálúsugan hæng í Álftá í miðjum september, rétt eftir að hafa landað 7 punda grálúsugm þaralegnum hæng á sama stað. Þannig var það í „denn“ að göngur gátu staðið fram eftir hausti, ekki stórar, en reytingur kannski og stundum. Það er hins vegar ár og dagur síðan að það var við líði. Hin seinni ár er laxagöngum lokið um hásumar. Stóra Laxá hefur alltaf verið þekkt fyrir haustgöngur, en fátt bendir til að það séu nýgengnir laxar, þvert á móti þá þekkja þeir sem vilja þekkja að þá tekur laxinn sig upp af Iðu og hellir sér upp í Stóru.










