Að hugsa út fyrir boxið

Steinþór með hænginn svakalega. Myndin er fengin af FB síðu Halldórs Gunnarssonar.

Þessa síðustu daga laveiðinnar hefur lítið verið að frétta. Eitthvað að kroppast uppúr Rangánum, Affallinu, Skógá og Þverá, en ekkert sem breytir ásýnd vertíðarinnar. En það getur lengisa sí verið von á góðri veiðisögu og hér er ein óvenjulega góð.

Þarna er nú púpukrílið á vísifingrinum. Myndin er fengin af FB síðu Halldórs Gunnarssonar

Steinþór Jónsson og Halldór Gunnarsson hafa marga fjöruna sopið á ár- og vatnsbökkunum, en þeir félagarnir voru staddir við Eystri Rangá í vikubyrjun. Í Október er Eystri Rangá allavega m.t.t. ytri aðstæðna og þeir félagar voru í sjálfu sér heppnir þar, þar sem það var að hlýna nokkuð eftir kaldan kafla. En það er samt hark svona seint á haustin. Miklir reynsluboltar hafa oft talað um að stundum þurfi að hugsa „út fyrir boxið“, enda gerir það oft gæfumuninn, ekki hvað síst þegar þeir stóru eru annars vegar.

Nema, að Steinþór hugsaði út fyrir boxið er hann var staddur við Rangárvað. Í stað þess að fara með hefðbunda túpu með sökkenda og láta reka yfir með straumnum, skellti hann undir afbrigði af púpunni Phesant tail. Sem er náttúrulega fyrst og fremst notuð til silungsveiða. Stærðin nr 12. Og svo veiddi hann andstreymis, í Eystri Rangá af öllum ám. Og þetta bar þann árangur að tröllslegur hængur skellti sér á púpuna. „Hann tók púpuna á öppstrími og straujaði svo niður úr,“ skrifaði Steinþór á status á FB. Laxinn tók á Rangárvaði og náðist ekki fyrr niðri við Lóutún, sem er dágóður sprettur, og mikil átök allan tímann, enda eru þessir fiskar geysilega kröftugir þótt að langt sé liðið á haust. Þessi lax mældist 95 cm, en var ekki veginn. Menn geta bara ráðið í það kjósi þeir þess. 17-18 pund væri ekki út í loftið, en það er bara hugleiðing.