Byrjar afar vel í Veiðivötnum

Halldór Gunnarsson með einn einstaklega flottan úr Veiðivötnum. Myndin er fengin af FB síðu Halldórs.

Veiði í Veiðivötnum hefur nú staðið yfir í ríflega viku og fór veiðiskapurinn afar vel af stað. Alls skilaði fyrsta vikan 5878 fiskum á land, urriðar í meirihluta, en bleikjur líka margar.

Alls voru urriðar 3171 talsins og voru Litlisjór, 1014, og Ónýtavatn, 516, aflahæst. Í Litlasjó var mikið af 1-2 punda feitum og fallegum fiski. Alls voru bleikjur 2707 talsins og veiddust þær í helstu bleikjuvötnunum og að venju var Snjóölduvatn aflahæst með 732 fiska. Stærðin á bleikjunni er ekki á pari við urriðann, stærstu fiskar milli 4 og 5 pund. Stærstu urriðar til þessa 9-10 pund, en stærri belgir munu sýna sig, þeir gera það alltaf.

Lesendur geta farið inn á einstaklega vandaðan Veiðivatnavef, www.veidivotn.is og skoðað þar nánar, m.a. sundurliðaðar veiðitölur einstakra vatna. Séð þar dreifinguna, meðalþyngd og tölulegar upplýsingar. Vel gert hjá Veiðivetningum.