Enn eru stórir regnbogar að veiðast í Minnivallalæk

Nils með annan regnboganna, glæsilegur fiskur.

Enn eru að veiðast stórir og hraustlegir regnbogar í Minnivallalæk og ekkert frekar en fyrr, hefur nokkur maður hugmynd um hvaðan þeir koma. Munum við rétt byrjaði þetta við opnun 2024, þá veiddust þó nokkrir. Allt stórir og vel haldnir fiskar. Engar uggaskemmdir til að bendla þá við eldisker. Í fyrra skutu þeir upp kollinum og aftur nú í vor.

Þetta eru glæsilegir fiskar, ekki spurning um það og óhemjulegt stuð að setja í einn og glíma við hann. Fyrr í vor kom einn um 70 cm á land og nýverið var Nils Folmer Jörgensen veiðigúrú í ánni og sá tvo stóra liggja saman í litlum, nettum og einstaklega glærum hyl. Gefum Nils orðið:
„Lítur vel út, er það ekki?(myndin) En sannleikurinn er sá að regnbogasilungur á ekki heima í íslenskum ám. Svona kynni eru nátengd sjókvíaeldi. Flótti er vel skjalfestur og eftir því sem ég hef séð sjálfur, þá eru ekki allir fiskar að „sleppa“ óvart. Sumum móðurfiskum er einfaldlega „hent yfir öxlina“ í á þegar þeir hafa þjónað tíma sínum sem brauðvélar.
Þessi fiskur veiddist í lítilli, viðkvæmri á með berskjaldaðri íbúa af villtum urriða. Á þessum degi gat ég meira og minna séð hvern fisk í hyljunum. Í hyl nokkrum voru tveir stórir regnbogar sem héldu stöðu hlið við hlið, með aðeins nokkrum litlum villtum brúnum. Þarna liggur áhyggjuefnið. Samkeppni. Truflun. Vistkerfaójafnvægi. Og regnbogasilungar gera  sér veislu á hrognum á tímabilinu þegar villtu silungarnir eru að hrygna. Svo möguleg þurrka þeir villta silungnum út með tíð og tíma. Mér tókst að veiða báða regnbogana. Heppilegt að þetta er sjaldgæfur fengur á Íslandi!“
Þetta er náttúrulega hárrrétt hjá Nils. Um tíma bar talsvert á regnboga í Varmá í Ölfusi og þeir fundust m.a. með lús eftir sjógöngu. Veiddust allt að 10-12 punda fiskar. En það var auðvelt að staðsetja hvernig þeir voru tilkomnir. Eldishús á bakkanum við Stöðvarhyl höfðu m.a. að geyma regnboga í uppvexti. Regnboginn hrygnir að vori og því álitið að hann geti ekki náð sér á strik hér á landi. Það, hversu hlý Varmáin er, hjálpaði honum ef til vill. En svo fór að hann hvarf. Aðeins eitt dæmi er vitað um hrygningu regnboga í íslensku straumvatni, þegar Faxaflóinn var fullur af eldiskvíum á níunnda áratugnum, þá voru líka regnbogar í kvíunum sem sluppu út alveg eins og laxinn. Og í einhverri lækjarsprænu rétt vestan Akraness fundust regnbogar í hrygningu. Ekkert framhald varð þó þar á.
Þess er óskað að þeir sem landa regnbogum í Minnivallalæk, og þá víðar að sjálfsögðu, drepi þá og komi þeim til rannsóknar á Hafró.