Vikutölur sýna skrykkjótt gengi

Nils Folmer Jörgensen, einn helsti stórlaxaskelfir landsins, með einn af þeim stærstu það sem af er sumri, 98 cm á Autum Hooker, Símastreng í Víðidalsá. Myndir er úr safni Nils.

Angling.is tók saman vikutölur sínar og birti í dag. Miðast þó við 28.6. Tölurnar sýna að þó svo að í flestum tilvikum hafi aðstandendur verið sáttir með opnanirnar, þá hefur framhaldið verið alla vega. Athuga ber einnig þegar tölurnar eru skoðaðr, að árnar hafa vissulega verið opnar mis lengi.

Fyrst af öllu vekur athygli að Urriðafoss sé ekki efstur, sem hann hefur jafnan verið í júní síðustu árin. Þar byrjaði veiðin vel í byrjun júní, dalaði svo en hefur verið að koma hressilega til allra síðustu daga. Þetta er samt umtalsvert lakara heldur en í fyrra. Og það eru ekki sérlega margar ár með betri tölu heldur en á sama tíma í fyrra. Alveg þó nokkrar lakari.

93 cm bolti úr Skugga í Hvítá í Borgarfirði í morgun. Myndin er frá Hreggnasa.

Það eru þessar venjulegu vangaveltur í gangi, af hverju þetta og hvers vegna hitt. Tveggja ára lax virðist hafa gengið óvenju snemma, en náði kannski að dreifa sér meira snemma sumars og því ef til vill ekki veiðst í jafn ríkum mæli en ella. Þá hafa skilyrði í júní oft og iðulega verið veiðimönnum óvinsamleg. Kuldaköst, hitabylgjur, flóð og þrálát vestanátt á köflum. Allt dregur úr góðu gengi veiðimanna. Smálax sýndi sig víða snemma og þykir lofa góðu með öflugar göngur smálaxa. Einn straumur sem átti að skila smálaxi er afstaðinn og vissulega kom eitthvað af fiski, en tíminn mun sýna fram á hvernig fer.

Hér fara á eftir tölur úr efstu ám, fyrri talan er sú nýja. Seinni talan sýnir vikuveiðina, en VoV hélt til haga síðustu tölum. Af þessum tölum má sjá að einna líflegast er í Norðurá. Þá er vert að gefa Blöndu gaum, hún er með bata frá í fyrra, einnig Hítará, Víðidalsá og Eystri Rangá, úr hópi efstu áa.

Norðurá               246          118

Urriðafoss            225           59

Þverá/​Kjar­rá        118            41

Haffjarðará            93           64

Blanda                  69            40

Hítará                   53            24

Miðfjarðará            49            24

Víðidalsá               48            26

Eystri-Rangá         42            30

Nánari upplýsingar er að finna á www.angling.is