Þröstur ætlar að snúa á yfirfallið

Hér er Jökla á góðum degi, óvíða gefur að líta fallegri laxveiðiá. Myndina á Nils Folmer Jörgensen.

Þröstur Elliðason eigandi Strengja og leigutaki Jöklu er alltaf með það hangandi yfir sér hvort og hvenær yfirfall verði í Jöklu. Þetta hefur plagað hann árum saman því áin verður svo gott sem óveiðandi á meðan yfirfallið skilar sér af fjöllum og til sjávar. Núna er Þröstur með mótvægisaðgerðir í fullum gangi.

„Þetta hefur alltaf verið svona hvort og/eða hvenær dæmi. Aldrei hægt að ráða í það því að það fer svo mikið eftir árferði. Það hafa komið sumur án yfirfalls, önnur sumur ekki verið svo hagstæð. Þetta hefur gert alla sölu erfiðari og lítið gaman fyrir veiðimenn og mig sjálfan sem söluaðila, að lenda í yfirfalli. Á sama tíma er áin og svæðið allt að vaxa sem laxveiðiparadís,“ segir Þröstur, en hann er nú með mótvægisaðgerðir.

Jökla komin á yfirfall í fyrra, myndin tekiin við brúna hjá Brúarási.

„Ég er nú svo heppinn með þetta svæði að það eru hliðarár. Fossá, Laxá og Kaldá, sem renna í Jöklu og svo Fögruhlíðará sem rennur sjálfstætt og fellur til sjávar norðan við ós Jöklu. Við höfum verið með seiðasleppingar í þessar ár, svo og aðrar hliðarár miklu ofar í Jökuldalnum, eins og Hnefilsdalsá og Gilsá. Þar efra þrífast laxaseiðin vel og þar er nú komin blússandi hrygning. Í fyrra haust sáum við talsvert af laxi í Hneflu þannig að sprænurnar upp frá eru að skila sínu. Þær standa Þó ekki undir neinni veiði, nema kannski ármót þeirra við Jöklu. Og í yfirfalli, aðeins ef að það er ekki of rosalegt, því annars hverfur tæra línan frá þeim.

Laxá, Jökla
Veitt í Laxá, hliðará Jöklu. Mynd Snævarr Örn.

Þegar yfirfallið rénar geta þessi litlu ármót komið sterk inn sem veiðistaðir. Við höfum hins vegar verið markvisst að auka sleppingar í fyrrnefndu árnar sem eru neðar í kerfinu þannig að stofnar þeirra styrkjast og þær verði þá betur í stakk búnar að taka við Jöklustöngunum þegar og ef að yfirfall brestur á. Þær hafa gefið nokkra tugi laxa á hverju sumri, en við vonum að þær tölur hækki til muna við þessar aðgerðir. Það er engin ástæða til að ætla annað í raun og veru, þær sleppingar sem við höfum stundað í þeim hafa skilað sínu. Nú finnst okkur að það þurfi að treysta þessa ræktun og fyrstu skil gætu komið strax í sumar og svo pottþétt til framtíðar,“ sagði Þröstur.