Sá stærsti í vor?

Jón Þór með tröllið úr Svanafljóti.

Laxveiðin hefur farið nokkuð vel af stað og í gær var landað líklega þeim stærsta til þessa, hann kom úr Kjarrá…

…laxinn kom úr Svanafljóti í Kjarrá og var 97 cm….mjög nálægt 20 pundunum samkvæmt kvarðanum, en sennilega var hann 20 pund, lesendur geta skoðað myndina og velt því fyrir sér. Laxinn veiddi veiðileyfasalinn kunni Jón Þór Júlíusson.