Laxinn að sýna sig í Vopnafirðinum

Laxinn tekur heljarstökk, í Fosshylnum í Selá. Þar hafa nú veiðst fleiri laxar en á sama tíma í fyrra.

Það verður frróðlegt og áhugavert að fylgjast með komandi opnunum. Laxveiðin hefur farið nokkuð lofandi af stað og víða þar sem enn er óopnað, er laxinn tekinn að sýna sig og það fyrir þó nokkru.

Við heyrðum til dæmis af því í dag að áhugamenn um laxveiðar í Vopnafirði hefðu séð í það minnsta fimmtán stórlaxa á breiðunni neðan við Selárfoss. Þykir það mjög snemmt á þeim bæ, en enn eru tvær vikur í opnun árinnar. Á Sama daginn sáu sömu menn fimm boltafiska í fossinum Gústa í Hafralónsá og í Þistilfirði og er það sömuleiðis mjög snemmt. Mbl.is greindi síðan frá því í dag að veiðimenn sem voru að merkja veiðistaði á efsta svæði Stóru Laxár í Hreppum hefðu séð all nokkuð af laxi á efsta svæði árinnar, m.a. laxa sem voru greinilega ekki alveg nýgengnir. Mest var af fiski í Hólmahyl, en laxar sáust einnig víðar.