Opnun Miðfjarðarár gefur fyrirheit

Valgarð Ragnarsson með glæsilegan hæng úr Miðfjarðará í dag.

Miðfjarðará var opnuð nú seinni partinn í dag. Lax hafði sést víða fyrir opnun og væntingar góðar. Og það var líf, stundum komið fleiri í opnun en stundum líka færri. Svona eins og gengur, en í stóra samhenginu var þetta á pari við opnanir nú í byrjun sumars almennt.

Hér er „hinn lax“ dagsins. Myndir eru báðar frá Rafni Val Alfreðssyni.

„Það komu tveir úr Miðfjarðará í dag. Við sáum laxa mjög víða í Vesturá, en minna í Austurá og Miðfjarðaránni sjálfri,“ sagði Rafn Valur Alfreðsson leigutaki árinnar í samtali við VoV í kvöld. Eitthvað tylltu menn í laxa og misstu. En byrjunin lofar góðu, því talsvert sást af laxi og þegar skilyrði batna glæðist eflaust. Heitt var í veðri og vatnið glært.