
Það fjölgaði í flórunni í vikunni þegar Þverá var opnuð. Og líflegt var það, 9 á fyrstu vakt og komnir 15 eftir fyrstu þrjár vaktir. Bara fínt start.
Nú er að sjá hvert framhaldið verður, en Þverá naut örugglega gós af því að gönguskilyrði í Hvítá hafa verið með þeim hætti að fiskur hefur lítið stoppað í Brennunni. Vaðið bara áfram upp. Þó hefur eitthvað veiðst í Brennu og menn talsvert verið að sjá laxa skvetta sér og stökkva.
Þá er gaman að segja frá því, að Jón Helgi Björnsson á Laxamýri greindi frá því í dag að tveir laxar hefðu sést í Bjargstreng, neðan Æðarfossa í Laxá í Aðaldal. Auk þess má nefna að silungsveiðimenn sem voru í bleikjuveislu í Ásgarði í Soginu settu í fallegan tveggja ára lax sem því miður fyrir þá losaði sig af flugunni eftir harða viðureign. Þannig að lax er einnig mættur í Sogið…já og Finnur Harðarson leigutaki Stóru Laxár er einnig búinn að láta vita af löxum í sinni á, m.a. tveir stórfiskar í Hólmahyl á efsta veiðisvæðinu, sem er reyndar þekktur fyrir að halda fiski strax í byrjun veiðitímans.









