
Loksins kom lax úr Blöndu, nú um helgina. Staðan á ánni er ekki góð miðað við þessa byrjun, en síðustu ár eru nokkuð vörðuð laxlausum opnunum. Fyrrum opnaði Blanda í takt með Norðurá og seinna Urriðafossi, en nú þykir sýnt að menn skoði að opna seinna.

Hins vegar hefur silungsveiði í ánni verið afar góð. En talandi um lax, þá hafa aðstandendur nokkurra laxveiðiáa sem ekki hafa opnað sagt frá því að laxar hafi sést. T.d. hefur Þröstur Elliðason greint frá tveimur löxum sem sáust í Hrútu um helgina. Og Six Rivers hafa sagt frá fyrstu löxunum í Selá, sem sáust að venju á Breiðunni neðan við Selárfoss. Á myndinni sem við stungum í vasann af FB síðu Six Rivers má sjá hvernig umhverfið er umhorfs. Ljóst að vorkoman hefur verið með seinni skipunum þetta árið.









