Veiðikortið er að hefja sitt tuttugasta starfsár. Allt frá fyrsta degi hefur Veiðikortinu verið mjög vel tekið og þessum frábærum viðtökum má þakka það að hægt hefur verið að bjóða upp á frábæra valkosti í vatnaveiði, segir Ingimundur Bergsson, faðir kortsins og framkvæmdastjóri, sama titil gegnir hann einnig hjá SVFR.
„Á vefsíðu Veiðikortsins stendur m.a. og má taka undir hvert orð: -Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 36 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Nú gefst fólki loksins kostur á að stoppa við falleg vötn, í skemmri eða lengri tíma, án þess að þurfa að eyða miklum tíma í að finna út hvert á að fara til að kaupa veiðileyfi, eða hvort það sé fiskur í vatninu og þar fram eftir götum.
Með kortinu fylgir veglegur bæklingur og í honum eru lýsingar á veiðisvæðunum, reglur, kort og myndir. Einnig eru grunnupplýsingar á ensku í bæklingnum. Allur texti í bæklingi má finna á www.veidikortid.is bæði á íslensku og ensku og auk þess hægt að nálgast rafræna útgáfu.“
Hvað segir Ingimundur um sölu og vinsældir Veiðikortsins? „Ég er lítið að upplýsa um tölur, en vinsælt er það. Salan gengur í sveiflum. Þegar vel viðrar þá fer allt á fullt og kortið selst vel. Þegar veður er verra hægir hins vegar á öllu,“ segir Ingimundur. En svæðin er 36 talsins og flest ár bætast ný við. Hvernig er það 2026?
„Hagavík við Þingvallavatn kom nýtt inn í fyrrasumar og því eina nýja svæðið sem kom inn í bæklinginn 2026.“ Það má einnig segja um öll þessi svæði Veiðikortsins, að sum eru best snemma, önnur um hásumar og enn önnur síðsumars og um haust. Mörg þessara svæða eiga einnig sína tíma á öllum tímum vertíðarinnar. T.d. Elliðavatnið, urriði fyrst á vorin, svo kemur bleikjan hægt og rólega inn þegar kemur inn í sumarið. Síðsumars og um haust eru þess síðan mýmörg dæmi um að menn geri fína urriðaveiði á straumflugur, einkum snemma á morgnanna og þegar rökkva tekur. Svona er hægt að stúdera mörg þessara svæða, alls staðar möguleikar, alla vertíðina á enda.











