Það er alveg makalaust hvað það leynast margir úlfar í sauðagærum meðal stangaveiðimanna. V&S hefur angrað marga og þá eru veiðistaðir eins og vötn á Skagaheiði, Arnarvatnsheiði, Veiðivötn og aragrúi annarra veiðistaða sem gefa mönnum tækifæri á að veiða“í soðið“. En fyrir suma þá dugar það ekki. Hér færsla frá Kára Ölvaressyni sem deildi á FB….hann hefur orðið:
„Það var ljót sjón sem við sáum um helgina þegar við vitjuðum um grysjunarnetin í Skálavatni. Þar var fastur urriði með spún í hliðinni. Þessi spúnn sem myndin er af var þar.
Einsog fólk sér er 3 ögn á honum. Þessi einstaklingur sem notaði þetta verkfæri virðist stunda einhverskonar“húkkveiði“. Hann ætti að lesa hvað stendur aftan á veiðileyfinu,eingöngu EITT agn leyfilegt og skammast sín fyrir. Ég tók ekki mynd af fiskinum þar sem hann leit mjög illa út, enn þetta er verkfærið.“
Amen Kári og takk fyrir þetta innlegg. Veiðimenn, verið á varðbergi og látið vita af svona ósóma. Þetta er sama gamla sagan, fáir koma óorði á alla. Þetta þarf að uppræta. Og fyrst að við erum í umvöndunartóninum, þá höfuð við hér á VoV fengið næstum tug ábendinga um fugla sem eru að flækja sig í girnisstubbum, stundum heilu flækjunum. Hvernig væri að stinga þesu í vasann eða poka og setja í ruslið heima?










