Það eru enn uppi deilur um gildi V&S. Og enn heyrast raddir um að lax þoli ekki sleppingu og deyi. Magar rannsóknir hafa sýnt hið gagnstæða þó að það geti auðvitað gerst við vissar aðstæður að slepptur lax hafi það ekki af, en hér er skemmtileg saga.

Aðstandendur Fljótaár í Fljótum haldi úti FB síðu og hér er texti sem við pikkuðum upp þar. „Það er gaman frá því að segja að í fyrradag, 16. ágúst, fengum við 70 cm hæng á Steinseyrarbreiðu. Sá var með gamalt slöngumerki í sér og hafði áður veiðst og verið merktur 1. ágúst í fyrra á Efra vaði og var þá aðeins 55 cm!“
Sko! Það virkar. Bara enn eitt dæmið af gríðarmörgum. Einn og einn deyr. Það gerist sérstaklega ef vatn er lítið og súrefnislaust eftir langa þurrka og hita. En einu sinni var ritstjóri Í Svartastokki í Kjarrá með 55 cm hrygnu…þurrkar höfðu staðið lengi, vatnshæð lítil og straumlaust á veiðistaðnum. Hrygnan litla virtist dauð, en eftir 30-40 mínútna yfirlegu, synti hún aftur út í hylinn. Stuttu seinna kom önnur, 78 cm og það fór á sömu leið. Virtust vonlausar, hálfdauðar….dauðar eiginlega, en syntu samt út lifandi eftir þolinmæðisvinnu.










