ÍF styrkir Veigu Grétarsdóttur

Eldislax sjókvíaeldi
Illa farinn eldislax í opinni sjókví.

Íslenska fluguveiðisýningin hefur haft sig minna í rammi en fyrr í seinni tíð vegna Covid faraldurs. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að félagsskapurinn hafi dregið úr styrkveitingum og fyrir skemmstu var sá nýjastii veittur, hann hlaut Veiga Grétrasdóttir.

Veiga Grétars t.h. og Gunnar Petersen formaður ÍF.

Í fréttatilkynningu sem að Stjórn Íslensku fluguveiðisýningarinnar hefur sent frá sér segir: r „Ákveðið að úthluta 660.000 kr. styrk til Veigu Grétarsdóttur vegna ársins 2021.Veiga Grétarsdóttir, kajakræðari og báráttukona fyrir náttúruvernd, hefur verið mjög áberandi í umræðunni um skaðsemi sjókvíaeldis. Óhætt er að segja að myndefni hennar, hvort sem er af stórfelldum fiskidauða, illa förnum eldisfiskum eða bakteríumottu undir sjókvíum, hafi vakið gríðarlega athygli síðasta árið. Stjórn Íslensku fluguveiðisýningarinnar þakkar Veigu sitt framlag í baráttunni gegn sjókvíaeldi og vonar að styrkurinn verði hvatning til enn frekari góðar verka.“