
Vikutölurnar frá angling.is komu seint að þessu sinni, eða síðla nætur/í morgun. Hvort eftir miklu var að bíða eða litlu er matsatriði. Tölurnar eru í það minnsta ekki góðar þegar skoðað er nú er „prime time“.
Þó er ekki hægt að segja að það sé laxlaust og alls staðar eru báðar laxakynslóðirnar í ánum, eins árs og tveggja ára, í fínasta ásigkomulagi. Hefur laxinn því verið í góðri veislu í uppvextinum í hafinu. Hvað skilyrði varðar, og þau hafa á heildina litið ekki verið góð, þá voru þau tekin að batna nokkuð undir lok viku. Þá voru brögð að því, t.d. í Langá og víðar og göngugusur skiluðu sér. Það skal því spurt að leikslokum með þessa vertíð.

En sem sagt, vikutölurnar eru það sem þær eru, og í góðri vertíð hefðu þær verið miklu hærri miðað við að umrædd vika spannaði miðjan júlí. Aðeins þrjár verstöðvar komnar yfir hálft þúsundið. Áður en við sýnum tíu efstu skal nefnt að bestu vikutölurnar voru í Ytri Rangá og Þverá/Kjarrá. Kíkjum svo á listann. Fyrri talan er heildartalan miðað við 19.júlí, seinni talan sem við höfum í sviga, er vikutalan.
Norðurá 553- (103)
Þverá/Kjarrá 540- (138)
Urriðafoss 508- (88)
Haffjarðará 357- (102)
Eystri Rangá 351- (118)
Ytri Rangá 346- (146)
Elliðaárnar 278- (102)
Selá 273- (94)
Miðfjarðará 263- (95)
Hofsá 232- (77)
Leyfum Blöndu og Langá að fljóta með, en tölu í Laxá í Kjós vantaði við þessa úrvinnslu.
Blanda 225- (70)
Langá 215- (84)
Það er síðan ekkert langt í næstu ár, sem eru Víðidalsá (180-61), Jökla (188-78), Stóra Laxá, Grímsá og Hítará. En það má að venju velta sér upp úr miklu fleiri og ítarlegri tölum á angling.is.









