Jökla met metveiðidag!

Einn af mörgum úr Jöklu á sunnudaginn. Myndin er frá Strengjum.

Það er allt að gerast á bökkum Jöklu. Eftir erfiða byrjun gengur nú allt í haginn og veiðin er feykigóð. Það er strax farið að hvísla um að metið frá 2024 gæti verið í hættu. Hver veit, ef að spár ganga eftir með að yfirfall komi seint eða bara alls ekki?

Þröstur Elliðason sagði í vor að hann hefði aldrei verið bjartsýnni á ævinni þegar talið barst að horfum í Jöklu. Vatnsstaða í miðlunarlónum, seiðastatus, mikill smálax í fyrra og bara allt í stakasta og Þrösturinn brosandi frá eyra til eyra. En svo byrjaði ballið. Flóðrigning setti allt á kaf svo dögum skipti. Því var tæplega lokið þegar hitabylgjan reið yfir og það er bara örstutt síðan að henni lauk, en með henni fylgdu miklir vatnavextir vegna sólbráðar.  En svo var bara eins og smellt væri rofa.

Í gær sagði Þröstur svo frá: „Metdagur í Jöklu! Jöklan varð loks að mestu tær í dag og það var ekki að sökum að spyrja að það varð veisla með 72 löxum landað. Fjölmargir fóru af og var sett í yfir 100 laxa er óhætt að segja og marga væna. 16 laxar voru á bilinu 80-92 cm og fjölmargir líka á bilinu 70-80 cm . Smálaxinn er að hellast inn líka og er hann í góðum holdum og stefnir í mikið ævintýri á Jöklubökkum í sumar.“

Nils Folmer er í hollinu, einhvern vegin þefar hann alltaf uppi bestu staðina á bestu augnablikunum. Hann bætti við þetta: „Þvílíkur sunnudagur á Jöklu! Við Pierre áttum öfluga morgunvakt, lönduðum 7 löxum, sá stærsti mældist 90 cm á HKA Sunray. Áin átti ótrúlegan dag, endaði með 72 laxa landað á aðeins 16 stangir!“

Svo hélt veislan áfram í dag þó að við höfum ekki enn staðfesta statistík. Það þótti heldur betur afbragð þegar vikunni sem lauk þann 21.7 gaf 159 laxa. Nú var bara einn dagur með 72. Þann 21.7 var áin komin í 347 laxa sem er magnað eftir hina erfiðu byrjun. Í fyrra veiddust 933 og var á flottu róli þegar yfirfallið skall á. Metið í ánni er 1163 laxar frá 2024 og hefði talan í fyrra vissulega getað orðið hærri því nóg var af laxi og yfirfallið tók drjúgan tíma úr umferð. Nú gæti metið hins vegar aldeilis verið í hættu. En best að segja sem minnst um það að sinni. Fyrir utan Þverá/Kjarrá er það Jökla sem á sviðið þó að víða gangi vel sem stendur, aðallega vestanlands, en einnig í Rangárþingi.