Þær fréttir hafa borist alls staðar að að sjóbirtingsveiði hafi byrjað með miklum ágætum. Enda tíðin með ólíkindum. Meira að segja kvartað undan vatnsleysi í Tungufljóti. En eitt hefur rekið á fjörur VoV. Stóru tröllin?
Ljóst er, að það er of snemmt að slá 90-100 cm risana út af borðinu. Mjög stórum birtingum hefur fjölgað mikið síðustu árin og vafalaust má þakka það VogSl. Jafnvel fleiru í náttúrunni. En allt um það. Magnús Jóhansson sjóbirtingsgúrú Suðurlands sagði í samtali við VoV nú síðla vetrar, að svo virtist sem að þeir „gömlu“ væru að tína tölunni. Veiðiskýrslur bentu til þess. Og þó að vitað sé að sjóbirtingur geti orðið miklu eldri en lax og hrygnt oft, þá eru þeir sannarlega orðnir ellismellir þegar komið er að 90 til 100 cm. Það var lítið um svoleiðis fiska í fyrra, en slatti árið áður. Kynslóðaskipti.
Núna berast vel góðar veiðitölur frá flestum sjóbirtingsstöðum. En enn bólar ekkert á 90-100 cm. Það stærsta sem við höfum hingað til frétt af var 86 cm í Geirlandsá. Þangað til að frétt kom frá aðstandendum he3imasíðu Eyjafjarðarár þar sem greint var frá 88 cm hrygnu.
Við tókum okkur það bessaleyfi að stela myndinni. Hún er af Matthíasi Stefánssyni, sem er beintengdur IO Veiðileyfum. Við birtum hana hér. Ekki vegna þess að þetta sé stærsti fiskurinn sem við höfum frétt af í þessari opnun vítt um landið. Heldur vegna holdafars þessa fisks. Gamla talið var „slápar“. Grindhoraðir fiskar eftir hrygningu haustið áður. Og þetta höfum við öll séð sem stundað hafa vorveiðina. Enseinni árin ber minna á þessu. Ber meira á því að fiskar komi bara andskoti vel undan vetri. EIns og þessi. ÁÐur voru það bara Varmá og Litlaá sem buðu upp á holfgóða vor“slápa“. Þessi fiskur Matthíasar gæti vart verið í betra standi þo að hann hafi veiðst að hausti með fullþroskuð hrogn til að bæta við þyngdina ogholdafarið. Eitthvað er að breytast.










