Þetta með Jöklu og hliðarárnar

Laxá, Jökla
Veitt í Laxá, hliðará Jöklu. Mynd Snævarr Örn.

Þetta með Jöklu og uppbyggingu hennar. Frábær veiði, svo kemur yfirfall og allt fer í baklás. Það hlýtur að vera óþolandi að reyna að reka slíka verstöð, en leigutalinn Þröstur Elliðason er með plön til að sporna við þessu, eins og við gátum um fyrr í sumar.

En þangað til situr hann uppi með stórfenglegt ræktunarstarf sem stendur og fellur með yfirfalli vegna Kárahnjúkalóns. Og ekkert hægt að spá í hvernig fer fyrirfram, allt fer eftir árferði….sem hefur ekki verið hagstætt þetta sumarið, svakalegir hitar framan af sumri, svo kólnaði að vísu um tíma, en skaðinn var skeður og yfirfallið kom venju fremur snemma, eða í byrjun ágúst.
Í raun eru veiðitölur í Jöklu á pari við það sem er að gerast á Norðausturhorninu. Þar er besta veiðin, með Selá og Hofsá í öndvegi. En það er þetta með yfirfallið. En það gæti hafa verið betri veiði þar þessar yfirfallsvikur. Það er slatti af laxi í hliðaránum og einnig í ármótum þeirra við Jöklu. Væn sjóbleikja líka. En það eru fáir að veiða. Fyrir ævintýragjarna gæti þetta þó verið veisla. En fyrst að yfirfallið kom snemma, þá lýkur því líka snemma og þá tekur veiðin aftur við sér og við fylgjumst grannt með hvernig fer í Jöklu. Einnig hvernig fer með mótvægisaðgerðir Þrastar, að styrkja laxgöngur í hliðaránar, sem er fráær framtíðarpæling, því leigutakinn situr uppi með yfirfallið.