15 Maríulaxar á þremur dögum!

Verður varla betra eða hvað?! Þessi mynd er örugglgega kandídat í veiðimynd ársins 2022.

 

Göngur eru kröftugar í Laxá í Kjós um þessar mundir og smálaxinn virðist ætla að gera sig gildandi þetta árið. Margir óvanir veiðimenn hafa verið í kjósinni að undanförnu, en sem betur fer einvalalið þeim til aðstoðar. Og það hefur ekki lítið að segja…..

Í færslu á FB síðu Laxár er greint frá því að 15 veiðimenn hafi landað sínum Maríulöxum í ánni síðustu þrjá daga. Margt eru þetta konur með litla sem enga reynslu. Sjón er sögu ríkari á myndinni sem við hnupluðum af síðunni. Mikil gleðii þar, enda fátt skemmtilegra en veiðiskapur!