
Það fór ekki hjá því að vætutíðin um helgina og í lok síðustu viku bauð upp á að veiðin glæddist víða. Nú er spáð „fyrstu haustlægðinni“ í vikulokin og að sú gæti mögulega blandast við fellibyl sem er að dóla á Atlantshafi, jah annað hvort í ökkla eða eyra.

Það bárust lífleg tíðindi víða að, en fyrst ber kannski að nefna að við erum nokkuð vissir um að 107 cm hængur veiddist í Hnausastreng í Vatnsdalsá í dag, sá stærsti úr ánni í sumar og einn af stærstu löxum sumarsins á landsvísu. En að hinum og þessum tíðindum, heili dagurinn í 2 daga holli í Norðurá gaf t.d. 34 laxa á meðan heilu vikurnar voru ekki að skora mikið meira er verst lét. Þá heyrðum við af fínum skotum víða þó að tölur hafi ekki fylgt. Má nefna Elliðaárnar, Leirvogsá, Laxá í Kjós og fleiri á Suðvestur og Vetsurlandi þar sem vatnsleysið herjaði verst.
Nú er sem sagt von á all svakalegri haustlægð og ef að spár ganga eftir gætu árnar hlaupið í kakó. Það ætti að vera veisla þegar sjatnar úr því og menn lendi þá ekki bara í laxi og birtingi, heldur líka hnúðlaxi og eldislaxi, en af þeim kónum virðist vera nóg þetta sumarið En það er gleðiefni að haustlægðirnar byrju snemma, því það hefur komið fyrir eftir erfið þurrkasumur að þær hafi ekki sýnt sig fyrr en að áliðnum september. Nú er svo sem engin trygging komin fyrir því að það muni rigna reglulega í september, en það byrjar að minnsta kosti vel.









