Nýjustu vikutölur miðast við kvöldið 30.8, eða í gærkvöldi. Ágúst sama sem búinn og einungis fjórar ár komnar með fjögurra stafa tölu. Sú fjórða rétt slefar yfir þúsundið. Aðeins þrjár ár hafa gefið betri veiði en á sama tíma í fyrra. Ein hefur slegið út 2022 töluna sína og einungis tvær til viðbótar eru líklegar til þess. Ef til vill mun vatnagangur komandi helgar breyta einhverju, en stóra myndin er sú að vertíðin 2023 er slök. Eiginlega arfaslök.
Margt getur svo sem enn breyst, en heildarmyndin virðist samt frekar skýr. Eina áin sem hefur toppað sig frá síðasta sumri er Laxá í Aðaldal sem er komin 160 löxum fram úr ömurlegu síðasta sumri þegar aðeins 402 laxar komu á land. Óskandi að Drottningin Norðlenska sé að rétta eitthvað úr kútnum eftir mörg mögur ár. Haffjarðará er aðeins 40 löxum frá því að slá út tölu síðasta sumars, sem var reyndar slakt sumar þar á bæ. Þannig að öll aukning er af hinu góða. Þá er Selá 106 löxum frá tölu sinni í fyrra, sem var gott sumar. Áin er það góðu róli að hún ætti að bæta sig.
Aðeins fjórar ár eru komnar í fjögurra stafa tölu og tvær þeirra eru hafbeitarárnar Ytri og Eystri Rangá. Hinar tvær eru Selá og Þverá/Kjarrá, en þær eru með sitt hvort ferlið, Selá á fínu róli en Þverá/Kjarrá allt annað en það. Hér að neðan listum við upp fjórtán aflahæstu árnar. Eins og oft áður vantar Urriðafoss inn í jöfnuna, en þegar að er gáð hvað við listum margar ár þá má sjá að sú neðsta er með 444 laxa. Það er Jökla sem mun taka góðan kipp þegar hún losnar við yfirfallið. Fyrir neðan þennan lista eru stórfrægar laxveiðiár, Laxárnar í Kjós, Dölum og Leirársveit, Grímsá, Vatnsdalsá og fleiri. Komast ekki inn í topp 14 í lok ágúst. En ekki meira um það hér, lesendur geta velt vöngum stanslaust yfir þessum tíðindum og bætt í jöfnuna eldislaxa- og hnúðlaxagöngur. Laxveiði á Íslandi stefnir í að vera eitthvað sem við þekktum ekki áður. En hér er listi topp 14, sem fyrr er fyrsta talan heildartalan 30.8, næsta tala vikuveiðin og síðasta talan heildarveiðin 2022.
Ytri Rangá 2532 – 373 (5086)
Eystri Rangá 1707 – 123 (3807)
Selá í Vopn. 1058 – 107 (1164)
Þverá/Kjarrá 1050 – 67 (1448)
Miðfjarðará 975 – 77 (1522)
Hofsá 909 – 62 (1211)
Norðurá 871 – 98 (1352)
Haffjarðará 830 – 41 (870)
Laxá í Aðaldal 562 – 58 (402)
Laxá á Ásum 545 – 30 (820)
Elliðaárnar 517 – 47 (798)
Langá 498 – 21 (1077)
Víðidalsá 467 – 45 (810)
Jökla 444 – 7 (803)
Við fórum svona djúpt í listann til að hafa Jöklu með. Slök veiði í henni stafar af yfirfallinu og þá er enginn, eða fáir, að veiða. Ef að veðurspá helgarinnar snarbreytist ekki þá verður eflaust veisla í framhaldinu. Líklega fara árnar á öllu vestanverðu landinu í kakó og í framhaldinu færir fiskur sig til og tekur betur. Kannski betri tímar fram undan á þessum lokametrum vertíðarinnar










