Enn er erfitt að ráða í sumarið

Menn hafa verið að setja í fína laxa á neðra svæði austurbakka Hólsár að undanförnu. Þessi veiðikappi heitir Jónas og sér ekki eftir að hafa skotist þangað í gær. Myndin er fengin af FB síðu Kolskeggs.

Þá eru vikutölurnar komnar eina ferðina enn og stórskrýtið sumar sýndi þess engin merki að það væri að greiðast úr flækjunni. Sömu árnar góðar, sömu árnar slakar, skilyrðin einsleit að vanda.

Vissulega náðu átta ár þriggja stafa vikutölu, en það gerði ekki mikið til að hífa upp heildartölur til samanburðar við tölur síðasta sumars, sem var nóta bena, slakt meðalsumar. Engin á er nálægt fjögurra stafa tölu og er júlí þó sama sem á enda. Sumar vikutölurnar voru allt í lagi, aðrar voðalegar, t.d. í Norðurá þar sem vikan gaf 35 laxa. Vika er samanlagt tvö þriggja daga holl og stangirnar ansi margar. Ósamræmið gagnvart ánni í næsta dal heldur áfram að vera sérkennilegt, en Þverá/Kjarrá var með 128 laxa vikutölu og settist í efsta sætið. Þetta er samt ekkert til að hrópa húrra fyrir, Þverá/Kjarrá samanstendur af tveimur 7 stanga svæðum og vikan þar er sömuleiðis tvö þriggja daga holl, eða fjögur í þessu tilviki.

Sem fyrr eru það ár á Norðausturhorninu sem að bera höfuð og herðar yfir aðrar ár, Selá, Hofsá, Jökla og fregnir herma að fleiri ár í landshlutanum séu að fá góðar göngugusur.

En kíkjum á tölurnar sem komu upp úr hattinum hjá angling.is að þessu sinni. Fyrri talan er heildartalan sem miðast við 26.7, önnur talan, sú í sviganum, er vikutalan og þriðja talan sem fylgir að þessu sinni er uppgefinn stangarfjöldi í hverri á fyrir sig. Sú tala ein og sér segir ansi margt.

Þverá/Kjarrá             668 (128) – 14

Y-Rangá+Hólsá V      618 (232) – 24

Norðurá                    588 (35)  – 15

Eystri Rangá              583 (232) – 18

Urriðafoss                  563 (55)   – 4

Haffjarðará                 447 (90)   -6

Selá                           438 (165) -6

Miðfjarðará                 409 (146)  -10

Hofsá                          383 (151)  -6

Langá                          351 (136)  -12

Elliðaárnar                   343  (65)   -6

Jökla                           325  (137)  -8

Blanda                         267  (42)   -8

Laxá á Ásum                 265  (87)   -4

Víðidalsá                       256  (76)   -8

Þetta eru fimmtán hæstu árnar í tölum og líklega er Urriðafoss besta svæðið með aðeins fjórar stangir þó að svæðið sé mun lakara en á sama tíma í fyrra. Eins og sjá má, eru Rangárnar með hæstu vikutölurnar og verður fróðlegt að sjá til eftir viku, hvort að stígandinn sem verið hefur, nái svo langt.

Þá er óhætt að lýsa eftir ám á borð við Laxá í Dölum, Laxá í Kjós, Laxá í Leirársveit og fleirum. Vikutölur ekki sérlega hagstæðar, en athyglisvert að Langá tosaði sig upp í 136 laxa viku og spurningin er hvort að vatnsmiðlunin sem áin býr að hafi leikið þar rullu, skilyrðin þar fyrir vikið hagstæðari en víðast annars staðar í landshlutanum.