Eitt og annað í gangi

Erlendur veiðikappi með fallegan Jöklulax í gær. Myndin er frá Strengjum.

Það skyldi aldrei vera að eitthvað sé að rofa til í laxveiðinni. Kannski ekki að því marki sem menn myndu ætlast til og vona miðað við tíma sumars, en eitthvað skárra en verið hefur.

Tökum sem dæmi Sogið, en við greindum nýlega frá 10 laxa vakt í Bíldsfelli. Því lauk ekki þar, því hollið endaði með 23 laxa a tveimur dögum og á sama tíma var mjög líflegt í Ásgarði, þ.e.a.s. frá öndverðum bakka.

Og t.d. Jökla, sem byrjaði vel og hefur síðan verið að bæta í. Hennar besti dagur til þessa var í gær, miðvikudagurinn, 30 löxum var landað og margir tóku og sluppu. Jökla er reyndar ein fárra áa sem gefið hafa svipaða veiði eða betri en á sama tíma í fyrra.

Kíkjum svo á Rangárnar. Góður stígandi í eystri ánni og einnig á austurbakka Hólsár, ekki hvað síst á neðri hluta þess svæðis sem er enn nokkurs konar tilraunasvæði. Í Ytri Rangá er nýlega liðinn besti dagurinn til þessa, 55 á land. Vissulega langt frá gullaldardögunum þegar einsakir dagar fóru vel inn í þriggja stafa tölu, en framför samt.

Á Norðausturhorninu lýsti Jón Þorsteinn nýloknum veiðitúr í Svalbarðsá með þessum orðum. „Mikið af stórlaxi á ferð, allir sáttir“ og á sama tíma mátti hlera vænlegar veiðisögur frá bæði Deildará og Ormarsá á Sléttu. Og þó að drottningin Laxá sé enn ekki með burðuga heildartölu, þá hafa nýliðnir dagar verið að gefa upp í 19 laxa og sjaldan færri en 9-10.

Vestanlands- og Suðvestan mætti samt fara að rigna. Mikið lækkað í ám á þeim slóðum og vænt slagveður gæti hleypt lífi í tökugleði laxa. Það virðist samt vera einhver bið á vætu ef marka má veðurspár.