Bleikjan sækir í sig veðrið á Arnarvatnsheiði

Arnarvatnsheiði, Örn Hjálmarsson
Örn Hjálmarsson með allt í keng á Arnarvatnsheiði. Myndin, sem er þó ekki ný, er af FB síðu Arnar.

Veiði er nú lokið á Arnarvatnsheiði og það fyrir þó nokkru. Við heyrðum allskonar fréttir þaðan í allt sumar og þótti því við hæfi að heyra aðeins í Snorra Jóhannessyni veiðiverði á svæði til fjölda ára og heyra hvernig sumarið lagðist frá hans skilningi

„Sumarið var nokkuð hefðbundið, framanaf var vindasamt og kalt og má segja að veiðin hafi goldið fyrir það. Þrátt fyrir það veiddu margir vel. Undanfarin ár hefur okkur virðst að bleikjan hafi verið á undanhaldi, meira veiðst af urriða, sem er nýlunda því hér á árum áður þurftum við að hjálpa urriðanum , með því að taka klakfisk og ala upp seiði til sleppingar .

En í sumar virðist bleikja vera að sækja í sig veðrið. Sú ráðstöfn okkar að friða alla læki of ársprænur frá miðjum ágúst virðist koma urriðanum vel enda er hann að undirbúa hrygningu um það leyti. Hér áður fyrr lágu menn í honum í lækjunum enda hann grimmur á þeim tíma og tók vel, enda að verja sitt svæði. Eins og áður dró úr veiði þegar kom fram í ágúst enda minnkar ætíð ásókn manna eftir verslunarmannahelgina alla vegana hverfa íslendingarnir nánast alveg eftir hana. Í heildina, þegar allt er skoðað, þá má segja að veiðin hafi verið góð og mest af fiskinum í góðum holdum.“