Nokkuð vel virðist hafa farið af stað á Norðausturhorninu, Lax var víða í stóru Vopnafjarðaránum og Jökla fór einnig vel af stað. Nú síðast erum við að heyra nokkuð frá Þistilfjarðaránum.
Svalbarðsá var t.d. opnuð í gær og það var „búmm“ eins og Jón Þór Júlíusson leigutaki árinnar orðaði það, en eftir fyrsta klukkutíma vertíðarinnar var búið að landa tveimur löxum. Athygli vakti að báðir voru smálaxar, „frekar óvenjuleg svona snemma, en þeir veiddust um miðja á, þeir stóru kannski komnir upp í foss og gilið þar,“ bætti Jón við.

Og Jökla heldur áfram á góðum nótum, 5-10 á dag og 4 í morgun, þar af einn 96 cm sem spænskur veiðimaður veiddi á lítinn Sunray í veiðistaðnum Svelg, sem er lengst uppi í á.
Í gær lauk síðan veiðiskap opnunarholls Sandár, sem er á vegum SVFR. Á vef SVFR er haft eftir Eiði Péturssyni árnefndarformanni Sandár, að opnunin hafi verið góð, 7 löxum landað og nokkrir til viðbótar tóku en sluppu. Laxarnir voru allir „vel haldnir tveggja ára laxar,“ eins og haft er eftir Eiði, en tveir hinna sem kvöddu veiðimenn áður en til mælinga kom voru mjög vænir, „alvöru Sandárlaxar“ eins og haft var eftir Eiði.
Áður höfðum við greint frá því að fyrstu laxarnir voru komnir úr Hafralónsá, tveir um helgina, en áin var lítið stunduð fyrstu daganna. Þá greindum við frá því í gær að fyrstu laxarnir hefðu veiðst í Fljótaá í Fljótum, tveir og fleiri sést og tapast.










