Það má segja að hver vikan sé nú annarri lík í laxveiðinni. Þessar sömu venjulegu ár eru með boðlega veiði, annars staðar er dauft og dofnandi. Rigningin sem spáð er mun kannski lyfta þessu aðeins.
Veðurfarið að undanförnu speglaðist aftur í aflatölum síðustu viku. Þurrkar og mikil hlýindi eru ekki það besta, ár að verða vatnslitlar og dregur víða úr göngum. Nokkrar ár áttu samt góða viku.
Það má sjá eitt og annað í tölunum. Mjög svipaða sögu og frá tveimur fyrri vikum. Á Suðvesturlandi upp í Borgarfjörð hafa smálaxagöngur verið í lagi og veiðin yfirleitt í góðu lagi á heildina litið og víða betri en á sama tíma í fyrra. Sumar hafa náð heildartölu síðasta árs og fleiri munu ná slíku hinu sama. Ár á þessu svæði eiga talsvert inni ef að skilyrði batna með haustinu. En veiðin var yfirleitt slök síðustu vikuna, þriðju vikuna í röð. Þetta stafar ekki af laxleysi, skilyrðin eru einfaldlega erfið og fiskur mikið til genginn og því verið að kasta á laxa sem hafa tekið lit og hreiðrað um sig.
Út á Snæfellsnesi voru göngurnar ekki eins hressar og sama má segja um árnar í Dölunum. Þar segir minnkandi vatn mikið til sín, en þó má vel við una gang mála í Haffjarðará. Smálax hefur aðeins verið að ganga í Dölunum, sérstaklega í Laxá sem átti nokkuð góða viku þar sem lúsugir smálaxar létu á sér kræla. Laxá og Haukan, eru taldar eiga nokkuð inni ef veðurlag verður hagstæðara, en laxamagnið í þeim er samt minna en í fyrra.
Norðanlands og Norðaustan hafa árnar í besta falli verið þokkalegar, mun minna af stórlaxi en í fyrra og smálaxinn seinn að skila sér. Miðfjarðará og Laxá á Ásum bera höfuð og herðar yfir aðrar ár á þessum slóðum. Í Vopnafirði, þar sem verið hefur niðursveifla síðustu sumur, kætast menn helst vegna þess að ástandið er ekki lakara en í fyrra, bæði Hofsá og Selá hafa gefið nokkrum löxum fleiri en á sama tíma í fyrra og ástandið almennt heldur betra en í fyrra. Vikan í Selá var t.d. bara góð.
Á sama tíma eru stöku ár nánast ónýtar, t.d. Fnjóská og Svartá, þar rættist ekki úr þó að enn geti það gerst. Þá er ekki hægt að horfa fram hjá stöðu mála í Breiðdalsá. VoV minnist þess varla öll þau ár sem við höfum fylgst með og unnið úr tölum angling.is, að vikuveiði í þekktri og nafntogaðri laxveiðiá sé núll laxar, eins og var fyrir þremur vikum. Og í þeirri næstu er varla hægt að tala um framför, því skv tölum angling.is var vikuveiðin í Breiðdalsá aðeins tveir laxar. Og núna datt áin aftur í núllið. Sem sagt, tveir laxar á þremur vikum.
Á Suðurlandi er þetta rólegt nema í Rangánum. Byrjuðu báðar frekar rólega, sérstaklega þó Eystri Rangá, en báðar hafa verið sterkar síðustu vikurnar og Ytri Rangá var nú að venju með lang bestu vikutöluna. Og veiðitölur í Eystri Rangá hafa verið flottar síðustu vikur. Dalaði samt talsvert í Ytri Rangá frá fyrri viku. Kíkjum á árnar, hverja fyrir sig og í sviga á eftir hverri vikutölu má sjá hvernig undangengnar vikur gengu.
Ytri Rangá. Enn ein flott vika þar, lakari þó en verið hefur, með 472 laxa (865, 594,717, 668, 332, 205 og 215 laxar). Áin þá komin í 4218 laxa en hafði gefið 5878 stykki á sama tíma í fyrra. Munar heldur betur um hinar mögnuðu stórlaxagöngur í fyrra.
Miðfjarðará. Vikuveiðin var mjög góð, eða 282 laxar (213, 321, 424, 256, 453, 298, 180 og 101). Magnað hvað áin heldur háum standard þar sem skilyrði hafa ekki verið auðveld og vatn minnkandi. Fór í 2668 laxa á 10 stangir, en 3287 laxar höfðu komið á land á sama tíma í fyrra. Þetta er jú umtalsvert lakari tala en í fyrra, en samt mjög góð útkoma sérstaklega m.t.t. erfiðra skilyrða næstum allt sumarið.
Þverá/Kjarrá. Vikan var sú besta í all nokkurn tíma, gaf 177 laxa (134, 73, 81,74, 237, 345, 248 og 152). Þetta er besta vikan í nokkrar vikur og þess má geta að þar er enn að ganga nýr smálax. Minnkandi vatn og hitaviðri hafa samt sett mark sitt á ána. Alls voru komnir 1777 laxar á land á miðvikudagskvöldið, en á sama tíma í fyrra voru þó komnir 1683 laxar á land þannig að áin er enn yfir veiði sama tíma í fyrra þó að síðustu vikurnar hafi verið erfiðar. Þverá/Kjarrá er skráð með 14 stangir.
Eystri Rangá. Er í góðum gír eins og síðustu vikur. Vikan þar gaf nú 284 laxa (310, 419, 334, 137, 56, 47, 66 og 22). Áin fór í 1685 laxa, en sama tala í fyrra var 2721 lax.
Blanda. Síðasta vika skilaði aðeins 59 löxum, það lakasta í allt sumar (112, 145, 161, 168, 231,143 og 102), heildartalan því komin í 1390 laxa. Munar afar miklu á sama tíma í fyrra þegar, skv angling.is, voru komnir 2244 laxar á land. Blanda var skráð með 4 stangir framan af á angling.is, en nú er keyrt á öllum 14 stöngum árinnar.
Norðurá. Vikan gaf aðeins 53 laxa (74, 53, 80, 129, 172,219, 184 og 158) Áin er vatnslítil og tíðarfar verið erfitt. Talsvert er af laxi í ánni og hún er í hópi þeirra sem á talsvert inni ef að úr skilyrðum rætist. Norðurá þarf verulega á haustlægð að halda! Mikið af laxi, en tekur ekki. Alls voru á miðvikudaginn komnir 1390 laxar í bók. Í fyrra var sama tala 1171 lax, sem sagt betra nú. Norðurá er skráð hjá angling.is með 12 stangir.
Langá. Það hefur hægt á Langá þó að vikan hafi verið ívið skárri en fyrri vika. Vikan gaf 88 laxa, (75, 111, 90,142, 199, 201 og 170 vikurnar á undan) Heildartalan 1237 laxar og var á sama tíma í fyrra 1033 laxar. Það stefnir því í betri vertíð þetta sumarið í Langá, haft er fyrir satt að þar sé mikið af fiski og ef að rignir fyrir vertíðarlok gæti orðið mikil og góð veisla. Langá er skráð með tíu stangir.
Haffjarðará. Vikan var sú slakasta til þessa, gaf 53 laxa (68, 104, 138, 123, 127,152 og 84). Áin fór í 1033 laxa og varð þar með áttunda áin til að ná fjögurra stafa tölu í sumar. Á sama tíma í fyrra voru komnir 1114 laxar á land. Af tölunum má lesa að þar finna menn nú í vaxandi mæli fyrir hinum erfiðu skilyrðum. Haffjarðará er skráð með 6 stangir.
Grímsá. Uppsveifla í vikutölu í Grímsá miðað við síðustu vikur, 74 laxar á land, (56, 101, 93, 91,142,128 og 112). Eins og sjá má af vikutölunum, að einni undanskilinni, þá er þetta nokkuð jöfn veiði. Grímsá hefur löngum haldið vatni betur en flestar ár í héraðinu og það skilar sér. Áin er nú komin í 918 laxa en sama tala í fyrra var 411 stk, Grímsá er því einn af sigurvegurunum þetta árið. Grímsá er skráð fyrir 8 stöngum.
Selá. Veiðin að lifna aftur. Vikan nú gaf 128 laxa (67, 93, 135, 123, 110, 95 og 27 í vikunum á undan). Heildartalan nú 813 laxar en var 731 á sama tíma í fyrra. Þetta er betra en í fyrra og farið að muna nægu til að marktækt teljist. Sex stangir í Selá.
Laxá á Ásum. Er alveg í lagi, en vikan samt fremur róleg miðað við flestar vikurnar á undan. Vikan gaf 64 laxa (89, 101, 98,63, 133, 107, 79 og 31). Áin var í gærkvöldi með 790 laxa, en 516 laxar voru í bók á sama tíma í fyrra. Laxá er skráð með fjórar stangir.

Elliðaárnar. Veiðin dalar þarna enn milli vikna. Alls komu 23 laxar í vikunni, (36, 58,70,102, 130, 107 og 110). Þarna er rúm fyrir mikla bragarbót ef að skilyrðin batna. Heildartalan núna 764 laxar en var 636 lax á sama tíma í fyrra. Elliðaárnar voru með fjórar stangir framan af,en sex stangir að undanförnu.
Norðlingafljót. Fljótið kemur nú inn í listann aðra vikuna í röð, en áin hefur allt annað eðli en aðrar ár sem hér eru teknar fyrir. Alkunna er að ólaxgengt er í Fljótið, en hafbeitarlax úr Hafnará er fluttur í ána og veiddur á stöng. Vikutalan í Fljótinu var flott, 142 laxar (293, 133, 55). Vaxandi og fín veiði. Norðlingafljót heldur vel vatni sínu.
Víðidalsá. Ekki sérlega gott í Víðidalnum. Vikutalan var 41 lax, (60, 38, 72, 57, 85, 82, 76 og 55) Heildartalan hennar nú 583 laxar en var 810 laxar í fyrra. 8 stangir eru skrifaðar á Víðidalsá.
Laxá í Aðaldal. Vikutalan hennar var döpur, 33 laxar, (49, 57, 70, 57, 146, 71 og 39), nokkrar sveiflur þarna á ferðinni en í heild slakt og ekki batnandi. Í gær var áin í 583 löxum, en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 904 stykki.
Laxá í Kjós. Harðlífi þar eins og verið hefur undanfarnar vikur, vikan gaf aðeins 17 laxa (30, 31, 58, 69, 93, 61, 114, 45). Laxá er talin eiga mikið inni og meira sé af laxi í henni en í fyrra. Það þarf hins vegar kúvendingu á veðurfari til að það takist að bjarga einhverju. Áin er komin með 549 laxa, en á sama tíma í fyrra hafði 366 verið landað. Þrátt fyrir þessi vandræði er áin því samt betri en í fyrra.
Vatnsdalsá. Önnur verulega slök vika þar. Vikan gaf 41 lax, (40, 55, 102, 52, 65, 42, 48 og 34). Áin færðist upp í 505 laxa. Sambærileg tala frá síðasta ári var 610 laxar. Sex stanga á.
Hofsá, Áin er mikið til á sama stað og í fyrra og síðari ár. Veiðin þó ívið meiri en í fyrra og meira talið af fiski í ánni og betur dreifður. Vikan var þó með þeim betri í sumar, skilaði 67 löxum,(55, 67,93, 46, 59, 40 og 35). Alls þá komnir 462 laxar á 6 stangir, en sama tíma í fyrra hafði 401 laxi verið landað.
Laxá í Dölum. Dalaði aftur eftir smá fjörbrot í vikunni á undan. Vikan gaf 39 laxa, (85, 47, 38, 84, 33, 56 og 25). Þurrkar hafa skemmt mjög fyrir í Laxá eins og víðar. Alls eru núna 418 laxar komnir á land, en sama tala í fyrra var 902 laxar. Fjórar stangir í ánni.
Laxá í Leirársveit. Önnur léleg vika að baki, aðeins 18 laxar, (11, 31, 47, 80, 64, 61 og 54). Slæm skilyrði að herja á ána og veiðimenn hennar. Vantar rigningu. Mikla rigningu. Heildartalan 408 laxar en voru 300 á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir hremmingar er áin því engu að síður með betri tölu en í fyrra! Laxá er langt frá því að vera fisklaus og er talin eiga talsvert inni ef að úr skilyrðum rætist.
Hítará. Afar róleg vika í Hítará, en vikan nú gaf 22 laxa, (45, 17, 50, 67, 73, 49, 23 og 10). Skilyrði verulega slök. Með þessu færðist hún upp í 375 laxa, en í fyrra var hún með 643 laxa á sama tíma. Fjórar stangir eru skráðar á Hítará.
Skjálfandafljót. Hér er átt við neðri svæðin, en tölur af svæðunum hafa verið svo stopul til þessa að við höfum ekki haft ána með. Vikutalan hennar nú var ömurleg, eða aðeins 7 laxar, (43, 80, 55,25, 60, 35, 22, 21)Þar með hafa veiðst 370 laxar á svæðinu. Sambærileg tala frá síðasta sumri liggur ekki fyrir.
Haukadalsá. Miðað við síðasta sumar þá er þetta mjög rólegt í Hauku og vikan var ekki lífleg, nánast eins og vikurnar tvær á undan, bara aðeins lakari eða aðeins 28 laxar, (38, 36, 38, 54, 48, 33, 41 og 27). Áin hefur gefið 359 laxa. Á sama tíma í fyrra var kominn 851 lax úr ánni. Fimm stangir.
Flóka. Þar var aftur slök vika, aðeins 21 lax, (20, 22, 17,22, 47, 51 og 83). Hefur verið á þessu sama rólega róli síðustu fimm vikurnar. Áin er samt komin í 341 lax, en 276 laxar voru komnir á sama tíma í fyrra. Betra, þrátt fyrir drómann. Þrjár stangir.
Stóra Laxá. Ekki var nú vikan alveg nógu góð, eina ferðina enn, austur í Hreppum, aðeins 7 laxar (7,23, 15, 52, 10, 46 og 117). Þarna er sárlega beðið eftir góðum rigningargusum og með þeim, haustgöngunum sem áin er fræg fyrir. Áin þá komin í 309 laxa. Á sömu dagsetningu í fyrra voru komnir 265 laxar á land. Enn státar Stóra því af betri tölu en á sama tíma í fyrra. Tíu stangir.
Jökla. Frekar jafnar vikurnar í Jöklu, þangað til núna, þessi síðasta sú slakasta til þessa, aðeins 10 laxar, (53, 60, 35, 50, 50, 18 og 12). Alls 288 laxar en í fyrra voru þetta 452 laxar á sama tíma.
Þverá í Fljótshlíð. Þar slaknaði heldur á aflabrögðum og vikan gaf aðeins 32 laxa, (69, 63 og 74 laxar í fyrri þremur vikum, fleiri vikur ekki til staðar á angling.is). Áin fór þá í 284 laxa en var með 211 á sama tíma í fyrra.
Svalbarðsá. Þokkaleg vika þar að baki, 30 laxar, (41, 16, 52, 31, 32 og 16 laxar). Áin þá komin í 242 laxa, en tala yfir ána frá sama tíma í fyrra er ekki finnanleg á angling.is.
Straumfjarðará. Verið frekar dauf hún Strauma og hélt áfram í sama mótinu. Vikan mjög róleg, sú slakasta til þessa, aðeins 8 laxar á land, (21, 9, 25, 44, 51, 16, 42 og 18). Hún er núna með 234 laxa á þrjár stangir en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 295 laxar.
Hrútafjarðará. Vikan mjög í anda flestra hinna undangengnu, gaf 33 laxa, (22, 93, 32,10, 45, 13). Áin þá komin með 210 laxa en var með 310 á sama tíma í fyrra.
Búðardalsá. Frekar nýlega kominn hér inn hjá okkur, en vikuveiðin nú var 23 laxar, (23, 20 og 21 lax(ar) í fyrri þremur vikum). Áin fór þar með í 189 laxa í sumar.
Laugardalsá. Hefur verið mjög róleg í allt sumar. Vikan gaf 9 laxa, (14, 12, 15, 20, 28, 10, 13) Áin hefur gefið 131 lax en í fyrra voru 185 laxar á sama tíma í fyrra. Afskaplega keimlík vertíðin sem sagt.
Affall. Affallið var með þokkalega viku eftir atvikum, en áin er afar vatnslítil eftir langvarandi þurrka. Fiskur undir, en takan verið slök. Þar var nú vika upp á 37 laxa, (24, 26 laxar í tveimur fyrri vikum). Heildarveiðin er nú 116 laxar, en 445 höfðu veiðst á sama tíma í fyrra.
Svartá. Svartá ætlar að flýta sér hægt þetta árið. Lak þó loks í þriggja stafa tölu, en stoppaði við 100 laxa slétta! Vikan var slök eins og aðrar vikur í sumar, 12 laxar, (25, 11, 15, 9, 17, 6 og 5) Veitt á fjórar stangir. Áin þá komin í 100 laxa en í fyrra höfðu 265 laxar veiðst á sama tíma.
Fnjóská. Slök sem fyrr. Eiginlega bara léleg, eða jafnvel ónýt, hvað sem veldur. Vikan nú gaf aðeins 7 laxa,(12, 14, 12, 4, 7, 6 og 7 laxar). Alls frá opnun 74 laxar en voru 163 á sama tíma í fyrra.
Breiðdalsá. Hvað er með Breiðdalsá? Enginn lax skráður yfir heila viku fyrir þremur vikum. VoV man varla eftir annarri eins uppákomu öll þau ár sem við höfum ritað um og fylgst með veiðitölum. Næsta vika gaf svo 2 laxa skv angling.is.Og vikan nú var aftur núllað. 0 laxar, (2,0,10, 10, 8 og 12). Veitt á sex stangir. Alls komnir 55 laxar á land, en á sama tíma í fyrra voru 203 laxar komnir á land og þótti slakt.










