Mok í Urriðafossi

Einn af 29 í gær, kannski sá stærsti. Myndin er frá IO.

Miklar göngur virðast vera að skila sér upp í Þjórsá og að venju stoppa þær við Urriðafoss þar sem veiðin hefur verið lífleg að undanförnu. Aldrei þó betri en í gær.

IO veiðileyfi, fyrirtæki Hörpu Hlínar Þórðardóttur og Stefáns Sigurðssonar, er með svæðið á leigu og þau greindu frá því að 29 laxar hefðu verið dregnir þar á land í gær, mest sprækur smálax, en einnig vænir laxar í bland, allt að 90 cm, sem er 16 pundari skv kvarða Hafró. Augljóst að hressileg ganga hefur hellst þarna inn og verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu.