Fyrsta Sportveiðiblað ársins

Fyrsta tölublað ársins.....

Fyrir skemmstu kom út fyrsta tölublað Sportveiðiblaðsins á þessu ári og er ritið þar með komið á 41.árgang sem er ekki lítið afrek ritstjórans Gunnars Bender á tímum allskonar vandræða í útgáfu prentmiðla.

Blaðið er að vanda smekkfullt af fjölbreyttu efni, að stærstum hluta stangaveiðiefni eins og vera ber í upphafi stangaveiðivertíðarinnar. Stjörnuviðtalið að þessu sinni er við leikarann Þorstein Bachmann, sem lék stóra rullu í Veiðiferðakvikmynunum sem slógu í gegn hjá áhorfendum. Annað stjörnuviðtal, sem rataði þó ekki nema að litlu leyti á kápu blaðsins er við Önnu Margréti Kristinsdóttur sem er ástríðuveiðikona sem m.a. hefur afrekað að veiða neðri hluta Yokanga í Rússlandi, en það mun ekki á færi nema allra færustu og þrekmestu veiðimanna.

Margt annað áhugavert er í blaðinu, t.d. grein eftir Robert Schmith um skotveiðar úr kajak, veiðiferð til Sloveniu eftir Gunnar Helgason og veiðiferð til Rio Grande eftir Gunnlaug Stefánsson. Þá eru veiðistaðalýsingar á sínum stað, m.a. Hítará, Ytri Rangá og Skógá.