Lofandi byrjun í Jöklu

Fyrsti laxinn úr Jöklu í ár, 85 cm úr Skipalág. Myndin er frá Strengjum.

Veiði hófst í Jöklu í morgun og voru væntingar manna umtalsverðar, enda hafði sést til laxa, t.d. í Hólaflúð auk þess sem áin hefur komið sér upp snemmgengum stofni.

„Þetta lítur alveg ágætlega út, fallegt vatn í ánni og græni liturinn kemur af sólbráð vegna hitanna sem staðið hafa að undanförnu,“ sagði Þröstur Elliðason leigutaki Jöklu í samtali við VoV í gær. Í morgun var svo hljóðið í honum enn gott. Þetta var fín byrjun, við settum í átta laxa og lönduðum fimm á fyrstu vaktinni. Sá fyrsti kom úr veiðistaðnum Skipalág og var nýgenginn 85 cm hængur.“