Vorveiðin hefur verið í takt við ótrúlega gott árferði þetta árið. Sem sagt yfir höfuð góð veiði hvort heldur er á slóðum sjógöngu- eða staðbundinna silunga. „Nýir“ sjóbirtingsstaðir hafa skotið upp kollinum og þar hafa menn veitt vel fyrir brot af þeim peningi sem krafist er á eðalsvæðunum.
Já, það er gaman að segja frá því að „venjulegir veiðimenn“ eiga nú nokkra valkosti sem farið hafa fremur hljótt síðustu árin. Hins vegar er kominn mai-mánuður og spurning hvað birtingurinn verður lengi á sveimi. Í venjulegu árferði er hægt að setja í birtinga langt fram eftir mai. Núna er tíðin svo góð og ýmsir hafa velt fyrir sér hvort að fiskurinn gangi fyrr til sjávar. Reynslan verður að skera úr um það.

En tökum sem dæmi Laugardæli í Ölfusá, sem er að austanverðu ofan við Selfoss. Svæðið er nú komið í almenna sölu hjá Kollu í Veiðibúð Suðurlands á Selfossi. Þar hefur lengi verið veitt á stöng, en undir radarnum. VoV skoðaði svæðið þegar SVFR hugðist selja stangaveiði á netaslóðum fyrir vænum slatta af árum. Ritstjóri fór þá snemma í ágúst og landaði engum fiski, en missti tvo í löndun, laxii og birtingi sem voru hvor um sig í kringum 10 pundin. Einnig var þrisvar elt upp í landsteina. Skemmst er frá að segja að svæðið er afar flott og veiðilegt. Og mikil bakkalengd fyrir aðeins tvær stangir. Og þetta er að auki ódýrt í samanburði við miklu dýrari og frægari svæði. En þarna er hörkuveiði, Kolla sagði t.d. frá einum kúnnanum, Einari Má Aðalsteinssyni sem landaði 18 birtingum á einum degi fyrir skemmstu og voru sjö þeirra á bilinu 70 til 83 cm. Einar veiddi allt á flugu og sleppti öllum fiski. Þarna má þó hvor stöngin taka einn heim. Og spónn er líka leyfður.
Annað svona svæði sem dúkkað hefur upp er Skálholtssvæði Brúarár sem Kristinn Ingólfsson hjá veida.is heldur utan um. Þetta svæði hefur ekki verið lengi í almennri sölu, en nú í vor hefur komið á daginn að þetta er spennandi (og ódýrt) sjóbirtingssvæði, sem og Hvítárhluti Skálholtslandsins. Þarna hefur algengur afli verið 4 til 10 fiskar á dag, en verið gloppur í skráningu og sölu. Þarna eru fjórar stangir leyfðar og spónn líka. Rafræna veiðibókin hjá Hafró sýnir nokkra tugi fiska frá opnun 1.apríl. Allt að 65 cm í Brúará, en að 80 cm í Hvítá.
Veida.is er með allskonar silungsveiðileyfi á boðstólum, m.a. fyrir landi Torfastaða í Soginu. Þar hefur veiði verið góð og menn farið upp í 10-20 bleikjur á dag. Sogsbleikjan er afar væn, en þarna er bara fluga og sleppiskylda á öllum fiski. Þá hafa borist fínar fréttir frá Hólaá sem rennur úr Laugarvatni, út í Hagaós og þaðan í Brúará. Veida.is er með Úteyjarsvæðið, en IO Veiðileyfi önnur svæði, m.a. Laugardalshóla og fleiri. Fín veiði hefur verið þarna í vor, urriðinn mest áberandi, en bleikjan aðeins verið að gera vart við sig líka. Hún verður síðan æ meira gildandi þegar kemur inn í sumarið.










