Líflegt í Fögruhlíðarósnum

Veiðisvæðið í Fögruhlíðarósi er afar fallegt, mynd Ásdís Guðmundsdóttir.

VoV er á ferð á Norðausturhorninu og gerði stutta heimsókn í Fögruhlíðarós í gær. Stutt stopp þar sem sett var í tvær bleikjur og einn birting, tyllt í nokkrar, auk þess sem nokkrar tökur voru og fiskur oft að elta. Sem sagt líflegt í ósnum.

Systurar Glódís og Sóldís Káradætur með fallegan sjóbirting úr Fögruhlíðarósi í gær. Fiskurinn tók Bleika og bláa, eins og vel flestir fiskar úr ósnum það sem af er verrtíð.

Fögruhlíðarósinn er með rómaðri sjóbleikjustöðum á landinu og því fróðlegt að fylgjast með framgangi veiða þar, þar sem sjóbleikjugengd- og veiði hefur farið þverrandi síðustu árin. Við skoðun á veiðibók kom í ljós að ósinn var opnaður um síðustu mánaðamót, enda getur sjóbleikja gengið og veiðst furðu snemma þar sem sjávarfalla gætir. Veiðibókin sýndi einnig að frekar lítil ástundun hefur verið. Samt var búið að skrá 123 fiska, lang mest af því sjóbleikju á bilinu 40-45 cm og nokkrir fiskar smærri og stærri. Þá eru nokkrir sjóbirtingar komnir á skrá, engir stórir, sá stærsti skráður 1,5 kg, eða 3 pund.