Veiði hófst í Grímsá í Borgarfirði í morgun og varð vart við laxa víða á svæðinu. Taldist mönnum byrjunin lofa góðu, en tölur vantar okkur enn þá.
Þó vitum við að laxar veiddust bæði í Laxfossi og í Strengjunum. Grímsá er að öllu jöfnu ekki með eins snemmgenginn stofn og Norðurá og Þverá/Kjarrá. Enda er hún opnuð seinna. Nú vill svo vel til að straumur er að ná hæstu hæðum á ný og á sama tíma spáð vætu á vestanverðu landinu. Það kæmi því ekki á óvart ef að veiðin myndi glæðast umtalsvert á komandi dögum og vikum.










