VoV er að skreiðasta á lappir aftur eftir nokkurra daga tæknibilun. Því miður gerðist það á heitum tíma sumarsins, nokkrar laxveiðiár að opna. Við munum taka saman helstu punkta hér og vonum að tæknin verði til friðs og hætti að stríða okkur.

Rangárnar byrjuðu báðar í gær og komu níu á land í Eystri og fimm úr Ytri. Laxar misstust einnig. Allt var þetta fallegur tveggja ára lax og sá stærsti sem við fréttum af var 95 cm hængur sem veiddist í Ytri Rangá.
Víðidalsá var opnuð þann 18.6, ögn fyrr en venjulega. Þar var lífleg opnun, níu var landað á fyrsta degi og var sagður víða á svæðinu. Þá voru Elliðaárnar opnaðar en þar var rólegt.
Loks má geta að Hrútafjarðará var opnuð í gær. Þröstur Elliðason leigutaki árinnar sagði í samtali við VoV að hann hefði verið með fjölskyldunni að ditta að og undirbúa vertíðina. „Við tókum bara einn morgun í veiðinni og lönduðum fyrsta laxi sumarsins. Það taka duglegir veiðimenn við ánni og það gæti orðið gaman hjá þeim því lax sást víða, m.a. í Síká, hliðará Hrútunnar.









