Að geyma lappirnar niðri á jörðinni

Fengum þess að láni frá FB síðu Laxár í Aðaldal, glæsileg hrygna úr stóra hollinu."

Að undanförnu er mikið talað um Jöklu, Þverá/Kjarrá, jafnvel Blöndu sem virðist hafa fundið lifandi taug í einhverjum strengnum. Og Laxá í Aðaldal fær líka núna heilmikið rými. Hún er „á eldi“ sagði einhver“.En ekki skjóta sendiboðann….hann er stundum leiðinlegi karlinn, en:

Facebook síða Laxár, Laxá í Aðaldal – Big Laxá, segir í síðustu færslu: „Drottningin er á eldi – 106 laxa holl! Það hefur verið ævintýraleg veiði í Laxá síðustu daga og áin er hreinlega á eldi. Sterkar göngur skila sér inn og fiskur veiðist upp um alla á. Hollið sem lauk veiðum í dag endaði með 106 laxa á land og langt er síðan slíkar tölur hafa sést í Laxá í Aðaldal.
Harðsnúið lið var við veiðar síðustu daga – veiðihópur frænda sem kenndir eru við Grafarbakka á Húsavík, í bland við heimamenn úr Aðaldal. Þessi hópur lét hvorki rok, rigningu né allt að því skafrenning stoppa sig við veiðarnar, og það skilaði sér svo sannarlega. Þegar upp var staðið var útkoman hvorki meira né minna en 106 laxar.
Aflinn var blandaður af fallegum nýgengnum smálaxi og tveggja ára laxi, auk þess sem nokkrir stórir hængar komu á land – 92, 95, 96 og 97 cm – sem sýnir að þeir stóru eru farnir að gefa sig að flugum veiðimanna. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu á þessari glæsilegu veiði hér í Laxá í Aðaldal.!“
Þetta er frábærar fréttir frá Laxá, sem ýmsir höfðu jafnvel afskrifað sem laxveiðiá, ásamt Blöndu fyrir ekki svo löngu síðan. Gleðjumst yfir þessu, þetta eru frábærrar fréttir.
En lappirnar niður á jörðina takk fyrir. Í Sporðaköstum á Mbl er því bætt við í samtali við leiðsögumann með mikla reynslu að þetta minni á gömlu góðu daganna. Stöldrum þarna aðeins við. Á sama tíma og holl komst yfir 100 laxa múrinn í fyrsta skipti í mörg ár, þá er áin rétt dottin yfir 400 laxa og að verða vika liðin af ágúst. Kannski er þetta afturhvarf, en menn verða aðeins að halda í sér eftir mögru árin mörgu. Síðan árið 2016, er besta sumarið 2024 með 820 laxa og þá héldu menn lengi framan af að Drottingin væri að tölta í aftur hlað á ný á sínum hvíta hesti.
En það þarf að leita aftur til 2016 til að finna sumar sem áin lúsaðist yfir þúsund, 1207 komu þá, 1201 2015, 1009 2013, 1067 2011, 1493 20101117 2009 og 1076 2007, það fræga ár fyrir allt aðrar sakir.
Nú er það vissulega stðreynd að miðsumarsgöngur smálaxa hafa verið nokkuð öflugar eins og spáð hafði verið og stórlaxagöngur yfirleitt frekar slakar, eins og líka hafði verið spáð. Góðar líkur eru á því að 2026 verði all nokkuð skárra en hörmunin í fyrra. En þegar eru að berast fregnar af því að það sá að draga úr göngum. Laxá í Kjós lét vita af slíku nýverið, einnig hefur borist svipað úr Elliðaánum. Allt getur því gerst ennþá og eins og alltaf, erum við veiðimenn ekki bara upp á það komnir að það gangi lax í árnar, heldur að skilyrði haldist skapleg. Og nú byrjar að líða á seinni hluta vertíðar. Þannig að geymum lappirnar á jörðinni.