„Enginn skortur á fiski“

Einn af þremur í gær. Myndir eru frá Haraldi Eiríkssyni.

Laxá í Kjós var opnuð í gær. Nokkuð langt er síðan að menn sáu fyrstu laxana í ánni, undir lok mai eins og oftast áður. Væntingar voru því góðar.

Glímt við lax í opnun Laxár í gær.

Haraldur Eiríksson leigutaki og umsjónarmaður í Kjósinni sagði eftirfarandi: Við settum í sjö í gær og lönduðum þremur. Þetta var rólegra en við bjuggumst við, en mikil tökutregða. En enginn skortur var á fiski.“