Frá því hefur verið greint að fréttamaðurinn fyrrverandi Eggert Skúlason hafi verið að gera klára nýja röð Sporðakastaþátta, þátta sem teknir voru upp á liðnu sumri, en fyrsti þátturinn verður sýndur á Stöð 2 annað kvöld. Í kvöld var smá upphitun í höfuðstöðvum Sýnar.

„Jú, það var smá Sporðakastahittingur í höfuðstöðvum Sýnar áðan í tilefni þess að fyrsti þáttur verður frumsýndur á Stöð 2 annað kvöld. Það gladdi mig sérstaklega að ráðherra menningarmála Lilja D. Alfreðsdóttir gat heiðrað okkur með nærveru sinni og sömuleiðis Heiðar Már Guðjónsson stjórnarformaður Sýnar. Takk fyrir. Fannst veiðisleggjurnar vera sáttar við sýnishornin sem sýnd voru,“ sagði Ekkert í skeyti til VoV. Veiðimenn eiga eftir að sjá margt fjölbreytt og skemmtilegt, og stóra fiska, ekki bara laxa.