Blanda hefur verið í daufari kantinum í sumar líkt og síðustu ár, en það er ekki eins og áin sé fisklaus, það hafa verið að reytast inn göngur, smálax…..og stórlax! Veiðikonan Ragna Sara Jónsdóttir fékk að finna fyrir því fyrr í dag.
Ragna skráði atburðinn með þessum hætti á FB síðu sína: „Það borgaði sig á endanum að standa heilan dag úti í 5 stiga hita, grenjandi rigningu og roki í gær þegar þessi yfir 20 punda og í kringum 100 cm stórlax beit á. Nýgenginn og pattaralegur.“
Það má segja með sanni að ævintýrin geta gerst hvort sem veiðisumur eru dauf, meðalgóð eða frábær. Alltaf verða til minningar og veiðisögur.










