Það er magnað hvað sjóbirtingurinn hangir lengi í Heiðarvatni og Vatnsá miðað við normið t.d. í Vestur Skaftafellssýslu, sem er nú ekki svo langt i burtu. Nú var VoV í vatninu með skreppi í ána um helgina og afraksturinn var að sett var í fimm birtinga. Og ekki bara gelda, líka stór hrygningartröll.
Fyrir tveimur árum var VoV þarna um 17.júní og fékk tvær 80 cm hrygnur og nokkra 50 til 60 feita og gelda. Svo ekkert í fyrra, en núna voru þeir aftur mættir. Eitt hvöldið var sett í fjóra, þar af þrjá í kring um 55-60 cm og þann fjórða sem var einhvers staðar á bilinu 80-90. Að sjálfsögðu slapp hann! Og daginn eftir rétt við ós árinn kom sá fimmti, tæplega 80 cm hrygna.
Nú hljóta menn að spyrja sig hvað veldur, að birtingur haldi lengur til þarna en annars staðar. Yfirleitt er normið að um 15-20 mai séu þeir farnir til sjávar að kjamsa á því sem til fellur þar. Hér aftur virðist annað í gangi. Og það er ekki eins og hrygnusláparnir liggi í silungi í vatninu. Þær eru horaðar. Öðru mál gegnir um þá geldu, þeir eru frískir og fjörugir eins og Hemmi Gunn forðum. En veit einhver hvort að þeir eru nýgengnir eða bunir að hanga í vatninu allan veturinn. En nú er kominn teljari hjá Rudy og Ásgeiri og þá fá kannski einhver svör.










