Gísli Jóhannnsson með fallegan 80 cm lax úr Hvalbaki í Jöklu í dag.

Jökla hefur byrjað vel í byrjun sumars og Þröstur Elliðason telur þetta vera jafnvel bestu byrjun í ánni frá því að laxveiðiar hófust þar fyrir alvöru.

„Við erum tiltölulega nýbyrjuð en fengum svo daga kakódaga. Samt komu þrír á land í drullunni í gær og alls held ég að við séum komin með 30 laxa plús á land. Það er það besta frá byrjun. Hólaflúðin var full af laxi strax í opnun, en með flóðinu færði laxinn sig niður á hægari slóðir neðar, þar heitir Hvalbak. Þar veiddust þessir þrír í gærmorgun. Þetta er allt fallegur tveggja ára lax, en í gær kom þó fyrsti smálaxinn.

Hrúta var slök í júní, en í fyrradag heyrði ég að fiskur væri farinn að ganga og fyrstu laxarnir komnir á land, hef því miður ekki tölur, en allt ítur betur út þar. Hins vegar hefur veður hamlað  veiðum á öllum mínum svæðum, það hefur t.d. ekki verið líflegt í Minnivallalæk nema daga og dag, minna stundað út af viðgerð á húsinu en samt. Það kom þarna um daginn harðsnúinn þurrfluguhópur sem hefur komið á sama tíma í mörg ár og fengið upp í 70 fiska, en það var varla sett saman í þetta skipti í norðanrokinu. Það munar um minna þegar spáð er í tölur. Þá voru menn á sama tíma að elta grillin út um alla móa til að bjarga þeim við Jöklu.