Veiði hófst í Laxá í Mývatnssveit í morgun og miðað við þær fyrstu fréttir sem við höfum fengið þá fer þar allt saman afar vel af stað. Mikið af fiski og í góðu standi.
Við heyrðum í Bjarna Júlíussyni í morgun, en hann er að jafnaði í opnun svæðisins ásamt sonum sínum. Hann sagði þetta: Þessi mynd er tekin við Sauðavð. Klukkan ekki orðin 9. Þetta er sá sjötti. Hafþór Bjarni alveg með þetta.“
Við munum freista þess að fylgja þessu eftir, en orðrómurinn er, að víðar á svæðinu sé sömu sögu að segja.










