Frábær byrjun á vertíðinni!

Stefán Sigurðsson með 80 cm birting úr Leirá

Það væri fínt að hafa fleiri fréttir eftir daginn, en hér er þó slatti og meira á morgun. Ljóst er að veiði fór mjög vel af stað, enda skilyrði góð og vitað var að umtalsvert var af fiski. Stærsti birtingur sem við höfum enn frétt af var 85 cm og veiddist í Eldvatni. Kannski slær Tungufljót það út þegar frekari fréttir berast þaðan.

Tungufljót fór mjög vel af stað að sögn Sindra Hlíðars hjá Fish Partners,, sem eru með ána á leigu. „Það voru komnir um eða yfir 30 fiskar á land um fimmleytið,“ sagði Sindri. Menn voru enn að þannig að búast má við að lokatala dagsins verði all nokkuð hærri. Algengt er að vorveiðin í Tungufljóti sé meiri eða minni aðeins í Syðri Hólma, en núna er einnig „stór torfa“ af fiski við brúna og þar hefur einnig veiðst slatti í dag. Fáum kannski meira frá Tungufljóti seinna í kvöld.

Geirlandsá fór ekki síður vel af stað. Þar hófu menn ekki veiðar fyrr en um hádegi og veiddu á klukkustund tólf fiska. Í kvöld voru þeir orðnir tæplega 40 og menn orðnir „vel saddir“ að sögn Gunnars Óskarssonar formanns SVFK í samtali við VoV í kvöld. Menn voru að fá fisk víða, í Ármótunum, neðan við Möstrin og við „Garðana“. Stærstur hjá þeim var 84 cm.

Sigvaldi A. Lárusson með þann fyrsta úr Tungulæk, 70 sem tók fluguna Zelinsky.
Þarna glittir í Zelinski….

Ekki höfum við tölur úr Tungulæk, en þar fór vel af stað að vanda og Sigvaldi A. Lárusson setti færslu inn á FB síðu Tungulækjar þar sem hann greindi frá því að fyrsti fiskurinn hefði neglt fluguna fljótlega, 70 cm á nýhnýtta flugu í fánalitum Úkrainu. Þegar fisknum hafði verið landað fékk flugan nafnið Zelinsky. Fallegt.

Sindri Hlíðar hjá Fish Partner fór á Kárastaði í Þingvallavatni en sagði stöðuna enn erfiða, ís á stórum svæðum, en hann væri orðinn þunnur og ekki langt í að vatnið yrði veiðanlegt. „Það var nóg að henda grjóti út á ísinn, þá fór hann í gegn, þetta er alveg að koma,“ sagði Sindri. FP er einnig með Vatnamótin. Þaðan komu ekki tölur í kvöld, en VoV heyrði að þar hefði verið býsna líflegt.

Erlingur Hannesson með 85 cm birting
76 cm úr Eldvatni í dag, mynd Jón Hrafn

Síðan bárust tölur úr Leirá, hátt í 30 og „margir“ 70 til 80 cm“. Sem sagt, allt í góðu þar.