Fínasta byrjun í Ásgarði

Stórbleikja dregin í Ásgarði í gær. Mjög dæmigerð fyrir meðalstærðina á þessum slóðum.

Veiði hófst víða í gær, m.a. á Ásgarðssvæðinu í Soginu. Þar er fyrst og fremst stór og mögnuð bleikja á vorin, en alltaf einhver slangur af sjóbirtingi og stöku hoplax að auki. Veiði fór vel af stað í blíðunni í gær.

Að sögn Árna Baldurssonar, sem er hefur með veiðina á svæðinu að gera, veiddust 11 fiskar í gær, mest bleikja, en birtingar sáust líka. Segir Árni vatnið vera mjög mikið í ánni, eiginlega of mikið, en það kom ekki að sök, ellefu var landað, en fiski þarna er öllum sleppt og leit að jafn vænni bleikju og þarna fyrirfinnst .