Leigutökum og aðstandendum Jöklu er fyrirgefið ef að þeir eru dálítið súrir þessa daganna, því áin fór óvenjulega snemma á yfirfall. Samt var hún um mánaðamótin komi með veiðitölu sem er hærri heldur en heildartala fimm af síðustu átta árum. Hvað ef, hvað ef, hefði yfirfallið ekki dunið yfir jafn snemma og raun bar vitni?

Það eru orðnar um þrjár vikur síðan að yfirfallið kom. Hitabylgjan fyrir austan framan af sumri sá fyrir því. Fram að því hafði veiði gengið vel í Jöklu, sem og í hliðarám hennar. Síðast þegar angling.is birti vikutölur, þann 29.ágúst höfðu 402 laxar veiðst. Útlitið sem sagt mjög gott fram að yfirfalli, en síðustu næstum þrjár vikurnar hafa hliðarárnar Fossá, Laxá, Kaldá og Fögruhlíðará, sem reyndar fellur sjálfstæð til sjávar, en er hluti af veiðisvæðinu, séð um veiðiskapinn.

Ef talan 402 er skoðuð í samhengi við síðustu ár, þá var metsumar Jöklu 2015 þegar 815 laxar veiddust. Sumarið 2016 veiddust 585 og 2011 voru laxarnir 507 talsins. Öll þessi sumur voru göngur góðar og yfirfallið kom seint.

Göngur hafa auðvitað verið misgóðar frá ári til árs, en frá því að skráðir laxar fóru að birtast hjá angling.is, 2010, þá var heildarveiði í Jöklu hin árin fimm 355 sumarið 2017, 306 laxar sumarið 2014, 385 laxar sumarið 2013, 335 laxar sumarið 2012 og 305 laxar sumarið 2010.

Þetta segir þá sögu að veiðin þann 29.ágúst sl var orðin meiri heldur en heildarveiði fimm af síðustu átta árum þrátt fyrir að yfirfallið hafi spillt jafn miklu og raun ber vitni fyrir nærri þremur vikum.

Augljóslega voru líflegar göngur í Jöklu í sumar og synd að svæðið nýtist ekki betur þennan seinni hluta tímabilsins. En batinn er einnig í nærsveitum, þannig hefur Selá verið virkilega lífleg og með sína bestu veiði í all nokkur ár og augljós batamerki á Hofsá þó að batinn í henni sé hægari en í Selá. Vestar er síðan allt Norðurlandið undirlagt af smálaxabresti og slökum veiðitölum, og sunnar þá er lítið að frétta í Breiðdalsá sem er mjög slök annað sumarið í röð. Athyglisverð þessi staðbunda uppsveifla.