Það er kunnara en frá þarf að segja að Urriðafoss í Þjórsá var stjarnan sumarið 2017. Og enn bætti um betur í fyrra, 2018. Framan af var þetta tilraunaveiði, en nú er öldin önnur. Bakkarnir á móti eru nú tilraunasvæðin og við spurðum Stefán Sigurðsson leigutaka út í hvernig málin þróuðust sumarið 2019.
Hvernig var svo veiðin í Urriðafossi og hvernig dreifðist veiðin yfir vertíðina?
„1320 laxar, ótrúlegt, 755 sumarið 2017 en þá voru stangirnar bara tvær, fjórar nú og komin meiri reynsla á svæðið. Veiðin hófst 27 maí og veiddust milli 50-60 Laxar síðustu dagana í mai sem er alveg rosalega gott, Júní gaf um 500 laxa. Júlí gaf einnig svipað og Júní eða um 500 laxa. Ágúst var ekki seldur í topp en samt veiddust rúmlega 200 laxar, sem er bara mjög gott miðað við það sem við bjuggumst við, sama saga var með september ekki mikið selt, en samt veiddust um 100 laxar.“
Veiðist jafnt í gruggi og hreinna vatni?
„Flugan gefur meira þegar vatnið er tærara en þetta fer svona aðalega eftir hvað það er mikið af fiski að ganga, maðkurinn gefur alltaf vel þó svo að þjórsá sé dökk.“Er eitthvað af sjóbirtingi að viti þegar á líður?
„Já það er allveg töluvert af sjóbirtingi þegar líður á Júlí og svo aftur þegar haustar og ég held að sá stærsti í fyrrasumar hafi verið um 13 pund, svaka dreki.“
Hvernig reyndust tilraunasvæðin á austurbakkanum? Hvað veiddist, hver var ástundunin? Sjóbirtingur þar líka?
„Við fengum smá tilfinningu fyrir hvort það sé lax og hvort það sé hægt að veiða lax á nýju svæðunum. Kálfholt kom seint inn á tímabilinu í sölu en gaf þó nokkra laxa strax í byrjun júní, þegar veiðimenn í Þjórsártúni fóru yfir landamerkin fyrir neðan Urriðafoss, en þar eru frábærar breiður og klettar við landið sem laxinn stoppaði við og menn voru að fá á flugu. Þjórsártún kom okkur verulega á óvart en þar veiddust aðalega laxar við fossbreiðuna fyrir neðan Urriðafoss og svo aftur í litlum fossi sem liggur við hliðina á Urriðafossi, það sem kom mest á óvart var að miðsvæðið á milli brúa var frekar líflaust til að byrja með en þegar fór að líða á ágúst virtist mikið af laxi liggja á því svæði og var bara býsna fín veiði þá daga sem menn komu og var það allveg fram á haust.“
Eitthvað fleira í gangi við Þjórsá, ný svæði, eitthvað sem enginn veit um ennþá?
„Við opnuðum nýtt svæði sem er á milli brúa Rvk megin og er kallað Urriðafoss B svæði, það tilheyrði áður Urriðafossi en menn fóru ekkert þangað því menn voru svo uppteknir að togast á við lax í Urriðafossi. Við þekkjum það svæði aðeins og þar er lax og við höfum gert fína veiði þar. svo það er spennandi kostur fyrir veiðimenn.“










